Það er nú það.. Pælingin var að nýta það helsta fyrir sjálfan mig og voru drifin það sem ég ætlaði að skoða. Mér finnst að minn græni mætti fara hægar í lága drifinu en vil samt ekki að vélin snúist mikið hraðar í 5. gír. Ég veit ekki hvaða hlutföll ég er með en þetta var eitthvað sem ég ætlaði að kanna. Ef svo færi að ég myndi selja drifin þá fer þetta á sanngjarnan pening plús að ég myndi ekki rukka meira fyrir að rífa þetta úr sjálfur.
Á meðan við erum að tala um öxla og annað. Þá passa framöxlarnir úr vitara yfir í sidekick. semsagt bílana sem eru ekki facelift. En það gildir einungis um 1600bílana. Ég kannaði þetta ú umboðinu. Þar sem að ég var einmitt búinn að heyra að vitara öxlar pössuðu ekki í sidekick. En ég er einmitt með öxul úr vitara í mínum bíl. En umboðið talaði samt um að þetta passaði bara frá 92-95 Gott að benda ykkur á þetta. Látum þetta vera fróðleiks mola dagsins
Hann er á 31" en eigandinn ætlar að hirða þau. Það eru pottþétt upphækkunarklossar undir honum sem yrðu vitanlega til sölu. Brettakantarnir eru lítið breiðari en orginal ef þá nokkuð.
Það er spurning hvort að rúðan í hægri aftur hurðina þessi sem hægt er að opna og loka er heil og passar í minn 1997 Sidekick Sport... Ef svo er þá hef ég áhuga.
eg nota 80w90 autodata mælir með 75w90 en 80w90 á drifin.
það fer 1,5 lítri á gírkassann, athugaðu að ef bíllinn er upphækkaður, oft mismikið að framan og aftan þarftu að tjakka hann upp og hafa hann "level" áður en þú fyllir á, tappinn á gírkassanum ef nefnilega ekki fyrir miðju heldur frekar framarlega í gírahólfinu, farþegamegin séð.
endilega búðu til nýja staka þræði fyrir einstakar spurningar óviðkomandi tilteknum þræði í framtíðinni
Það er spurning hvort að rúðan í hægri aftur hurðina þessi sem hægt er að opna og loka er heil og passar í minn 1997 Sidekick Sport... Ef svo er þá hef ég áhuga.
Kveðja, Tryggvi
Sælir Mig minnir að það hafi verið lélegar filmur í afturrúðunum. Ætli það sé ekki hægt að ná gömlum filmum af? Ég skal kanna hvernig ástandið á henni er, fæ bílinn líklegast á morgun.
Ég hefði allveg áhuga á kössunum, sérstaklega millikassanum. Mig vantar þetta ekki í dag, en mér væri meira rótt ef þetta væri tiltækt í skúrnum hjá mér
Ég hefði allveg áhuga á kössunum, sérstaklega millikassanum. Mig vantar þetta ekki í dag, en mér væri meira rótt ef þetta væri tiltækt í skúrnum hjá mér
Ég skal setja þig nr 1 á listann. Er kassarnir þínir að gefa sig?
Ég hef heyrt að hlutföll í millikassa aftan á sjálfskiptum séu lægri í lága drifinu.
Svo eru til bsk type 1 og 2, munurinn er að type 1 er lá gíraðri en mjög sjaldgæfur, og þekkist á því að það er hægt að skipta beint úr 5 gír og í bakk.
Type 2, sem flestir eru með er með öryggisgorm sem hindrar að maður geti sett beint í bakk úr fimmta, þarft að fara í neutral og svo til hliðar, og svo í bakk.
Type 1 kassinn var algengur í 8 ventla blöndungs 89-93 suzuki og geo
Ég vissi ekki að það væri einhvers virði hehe, en ljúft væri að fá eina kippu af ísköldum
hehe. Er ekki alt einhvers virði? En segðu mér eitt. Ertu ekkert á leið í önundarfjörðinn í sumar??? Nú eru Dýrafjarðardagar um helgina Það var nú eitthvað meira sem að ég ætlaði að fá hjá þér En Það er nú alveg dottið úr minninu í augnablikinu. Það væri kanski ekkert svo vitlaust ef að þú gætir selt mér hliðarljósin bæði aftan og framan. Ef þú ætlar þá ekki að setja þau á vitöruna
Jæja nú er "nýr" suzuki kominn í hús. Kostaði mig ferðalag upp í Svínadal með kerru og hvaðeina. Kemst ekki í að skoða hann almennilega fyrr en annað kvöld en Tryggvi, í fljótu bragði sýndist mér hægri afturrúðan vera stráheil en með dökkri filmu. Hliðarjósin eru á sínum stað og ætla ég mér ekki að nota þau. Ég skal kíkja á teppið Gísli en þetta er bíll sem eigandinn er búinn að stromreykja í, er það í lagi? Eru ekki teppin orðin lúin eftir þennan tíma?
Það skiptir svosem engu máli. Ég hreinsa bara teppin. Ég ætlaði aðalega nota þetta sem auka einangrun yfir hitt teppið sem er í bílnum. Bara til að þetta haldi pínu meiri hita yfir vetrar tíman. Svo er jafnvel spuring um að fá kanski hjá þér öskubakkann og brakketið sem heldur honum. Það er alveg skelfilegt að vera ekki með öskubakka undir klinkið sem að safnast stundum í vösunum hjá manni.
Það væri ljúft ef hægri aftur rúðan (upp og niður rúðan) í hurðinni er heil og góð. Mín er rispuð í spað og ekki hægt að filma með góðu móti. Þannig að ef þessi sem þú ert með er rispu frí þá óska ég hér með eftir henni. Hvað ertu að hugsa um að fá fyrir hana í aurum? Eða er eitthvað bíla dót sem þig gæti vantað sem hugsanlega ég gæti átt og við gætum skipt á?
Ég hefði allveg áhuga á kössunum, sérstaklega millikassanum. Mig vantar þetta ekki í dag, en mér væri meira rótt ef þetta væri tiltækt í skúrnum hjá mér
Ég skal setja þig nr 1 á listann. Er kassarnir þínir að gefa sig?
Nei nei þeir eru í fínu standi ...mig langar bara að eiga Mosann að eilífu, svo er aldrei að vita nema að maður dundi sér við að smíða lóló úr öðrum millikassa
Hér má berja dýrðina augum. Vélin hefur lekið hraustlega olíu síðustu misseri og er frekar sjoppulegur í flesta staði. Brettakantarnir virðast heillegir, er þetta ekki bara fyrir 31" eða hvað?
Ég var að spyrja kallinn og hann sagði að það hefði verið klesst á hann í kring um 2007. Hann lét laga þetta og vissi að það hefði verið skipt um hurð en ekki hvort hún hefði verið ný eða notuð, en það þurfti að sprauta hana. Þetta er því soldið óljóst og örugglega erfitt að segja, ætli þetta sjáist ekki ef maður rífur klæðninguna af og skoðar inn í hurðina?
Ef að það er ekkert ryð í hurðinni þá gæti verið að ég myndi vilja fá hana. Spurning um hvað þú setur á hana. Ég átti nú von á hurð frá félaga mínum. En veit ekki alveg hvernig það fer.
Það styttist í að maður fari í viðskiptaferð vestur með fulla kerru af súkkugulli fyrir þig. Ég skal grandskoða hurðina fyrir þig, viltu bara fá stálið eða viltu rúðuna, spegilinn og allt klabbið?
Það styttist í að maður fari í viðskiptaferð vestur með fulla kerru af súkkugulli fyrir þig. Ég skal grandskoða hurðina fyrir þig, viltu bara fá stálið eða viltu rúðuna, spegilinn og allt klabbið?
Það væri auðvitað fínt að fá hurðina með öllu. Nema kanski speglinum. En ég ætla að sjá hvað félagi minn segir. Findu eitthvað verð á hurðina fyrir mig og sendu það í einkapósti Svo geturu auðvitað bara selt mér allan bíinn
ég var búinn að lofa Jeepson teppinu en hann þarf að drífa sig í bæinn til að missa ekki af þessari gæðavöru Ég nenni auðvitað ekki að bíða mjög lengi.......
Nú er farið að þrengja að manni í skúrnum og væri ég til í að losna við sætin, afturbekkinn og afturhlerann. Sætin og bekkurinn eru í mjög góðu standi, bara skítug en aftuhlerinn er farinn að daprast aðeins af ryði en örugglega björgunarhæfur. Ef enginn vill þetta þá hendi ég þessu. Ég væri til í 2000 kall fyrir sæti og bekk sem er gjöf en ekki gjald. Afturhlerann skal ég gefa.
Hvernig eru rúðuþurrkublöðin á framrúðunni? ég er svo mikill gyðingur að ég tími ekki að kaupa ný og væri til í að borga eitthvað smávægilegt ef þær eru ekki sprungnar.