Jakob heiti ég og eignaðist mína fyrstu Súkku í janúar á þessu ári, það er Vitara '98 módel. Það er svosem ekki mikið um hana að segja nema að henni var breytt á sínum tíma fyrir 33" en ég á nú bara 31 og 32" dekk undir hana eins og er. Ég keypti þennan bíl á Reyðarfirði með ónýta heddpakkningu, tók með mér pakkningu austur og skipti um hana á staðnum. Tók sénsinn á að heddið væri í lagi og lagði svo af stað í bæinn. Það komu ekki upp nein vandamál á þeirri leið fyrir utan að það gekk illa að hemja aflið á leiðinni upp hvalfjarðargöngin og þar af leiðandi eignaðist ég fyrstu myndina af súkkunni minni.
en svona lítur hún út:
Það eru svosem engin stórvægileg plön með þetta, en er samt að gera það upp við mig hvort ég eigi að nenna að fara í að smíða upp sílsana í henni, þeir eru nú löngu horfnir.
Þessi kastaragrind er ónýt og ég ætla að taka hana af og smíða eitthvað annað í staðinn. Hverjum sem er er velkomið að hirða hana þegar ég tek hana af en það er ekki mikið gagn í henni Myndirnar eru nú bara frá því ég sótti bílinn, þá var hann búinn að standa númerslaus í nokkra mánuði, ég er búinn að vera að nota hann daglega síðasta árið