Forums
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda :: Forums :: Almennt spjall :: Almennt spjall
Suzuki Sidekick Sport "96 - eyðsla << Previous thread | Next thread >>
Moderators: ADMIN, Sævar, olikol, gisli, EinarR, AA-Robot, joolli, edit
Author Post
falcon
Sun Oct 27 2013, 08:59p.m.
Registered Member #1218

Posts: 9
Sælir
Er að spá í að kaupa mér Suzuki Sidekick Sport "96 (vél 1,8) en áður en ég tek ákvörðun þá langar mig að fá vitneskju með eyðslu á þessum bílum. Núverandi eigandi segist ekki vita hvað bíllinn er að eyða og ég finn ekki upplýsingar um það. Bíllinn er sjálfskiptur. Hafið þið einhverja vitneskju um þetta fyrir mig?
Back to top
falcon
Sun Oct 27 2013, 09:01p.m.
Registered Member #1218

Posts: 9
Gleymdi að nefna það að ég held að bíllinn sé ekkert breyttur, þ.e.a.s. ekki á stærri dekkjum en gengur og gerist.
Back to top
Tryggvi
Sat Nov 09 2013, 11:15p.m.
Registered Member #356

Posts: 198
Sæll

Hann gæti verið um 10.5 til 12.5 innanbæjar og 7.5 til 10 utan bæjar. Minn var það allavega fyrir breytingu á 27-28" dekkjum (minn er 1997 Sidekick Sport með 1.8L vél og er sjálfskiptur). En núna er ég á 33" dekkjum og hann er með 13.5 til 16 innan bæjar (fer eftir árstíð, sumar eða vetur) og er venjulega með um 9.0 til 13 utanbæjar (fer smá eftir vindátt og hversu mikið ég er að flíta mér).

Þessi vél og bíll hafa reynst mér MJÖG vel og því sem næst ekkert raunverulega bilað í bílnum, en ég hef jú breytt honum mikið þannig að það er talsverð endurnýjun á búnaði í bílnum. En mótórinn og skiptingin verið alveg til friðs.

Kveðja,
Tryggvi
Back to top
falcon
Wed Aug 06 2014, 08:26p.m.
Registered Member #1218

Posts: 9
Bíllinn var að eyða í vetur 20l innanbæjar, keyrði mjög stuttar vegalengdir í vetur og tankurinn dugði oftast í mánuð en ég keyrði bara í og frá vinnu, kannski 2-3 km önnur leiðinn. Mér finnst þessi eyðsla alltof mikil og er að spá í að selja bílinn aftur
Back to top
elmartbene
Mon Aug 11 2014, 10:14p.m.
Registered Member #1249

Posts: 11
Mjög skiljanleg eyðsla þar sem þú er á innsoginu allann tímann og bíllinn nær varla að hitna þessa stuttu leið 10,5 11,0 er eðlilegt minn var svoleiðis fyrir breytingu. Annars ættir þú að skoða kerti og loftsíu.
Back to top
 

Jump:     Back to top

Syndicate this thread: rss 0.92 Syndicate this thread: rss 2.0 Syndicate this thread: RDF
Powered by e107 Forum System
�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu. | Designed by Angelus Design