Ákvað loksins að gera kynningu um bílinn sem ég kaupti mér milli jóla og nýárs
Súkku áhugi minn byrjaði fyrir nokkrum árum eftir að hafa prufað 33'' breyta vitöru sem vakti upp mikla löngun til að eignast Súkku. Nokkur ár liðu án Súkku en loks varð draumurinn að veruleika:) Eftir mikla leit varð fyrir valinu þessi frábæra Suzuki Sidekick jx japplingur á 35'' túttum. 1600cc mótor með flækjum sem virkar ekki alveg nógu vel en nóg í bili:p er búin að gera smá fyrir hana frá því ég fékk hana, sauð í pústið, færði framstuðaran upp um 6cm, smíðaði kassa aftaná hana og það nýjasta eru stigbrettinn fínu henti svo Xenon kerfi og VHF loftnetinu á hana í gærkvöld
Já, þú ert að reyna að linka myndir úr tölvunni hjá þér, verður að vista þær einhversstaðar á netinu fyrst og linka þaðan. Hlakkar til að sjá!
1997 Vitara TDI, slyddujeppi 1992 Fox, lágþekja, 35\" 1995 Vitara, langur, 33\" 1986 Fox, langur, Volvo B20 36\" blöðrur 1998 Jimny, 33\" 1988 Fox- háþekja, óbreyttur, felulitaður
Spurning um að prufa 33" undir hana. þá ætti hún að verða eitthvað sprækari Kv: Gísli. suzuki sidekick 33\" 95 Army grænn skoda octavia vrs 2004 fjölskyldu bíllinn í augnablikinu TIL SÖLU
Flottar myndir. Massa bíll. Bjóst þú til þessar kefstingar fyrir brúsana og kassan?
Suzuki Samurai 1989 (Skari) Suzuki LJ10 1971 Suzuki SJ413 1985 (Rafiki) Honda Prelude 1987 Subaru Justy 1990 Power is nothing without controle!
smíðaði kassan og styrkti grindina og græjaði festinguna fyrir drullutjakkinn já hann er allur að koma til en margt ógert Suzuki Sidekick jx 35" ''Ísbjörninn''
Myndir takk Verð að sjá þetta snorkel hjá þér Kv: Gísli. suzuki sidekick 33\" 95 Army grænn skoda octavia vrs 2004 fjölskyldu bíllinn í augnablikinu TIL SÖLU
En ætlaru ekkert að hækka framstuðarann?
Kv: Gísli. suzuki sidekick 33\" 95 Army grænn skoda octavia vrs 2004 fjölskyldu bíllinn í augnablikinu TIL SÖLU
jú er búin að hækka hann, hækkaði hann um heila 6cm alveg upp að grillinu hendi inn nýjum myndum vonandi um helgina Suzuki Sidekick jx 35" ''Ísbjörninn''
Veitti þessum smá athygli bæði í ferðinni um daginn og svo í hafnarfirði í dag, orðinn vígalegur, veistu hvað hann er farinn að vigta með öllu þessu utan á sér
Suzuki Sidekick 1995 EI 425 "Lirfan" Suzuki Vitara JLX 1997 2dor "OH-BOB" Suzuki Sidekick JX 1997 4dor "HOLLENSKI DRAUMURINN" Suzuki Sidekick Sport JLX 1998 í upphalningu Suzuki Sidekick Sport JLX 1997 í niðurrifi
takk fyrir það ég vigtaði hann um daginn eftir eina ferð með hálfann tank +20lítra í brúsum og hann vigtaði 1560kg
Suzuki Sidekick jx 35" ''Ísbjörninn''
Djöfull fynst mér hann vigtka mikið hjá þér. En þú ert en á 35" er það ekki. bíllinn minn vigtar 1320kg með hálfum tanki. Þannig að hann er um 1430kg með mér ug fullum tanki. En svo á ég eftir að setja 33" varadekk aftan á hann og drullutjakk og svona.
Kv: Gísli. suzuki sidekick 33\" 95 Army grænn skoda octavia vrs 2004 fjölskyldu bíllinn í augnablikinu TIL SÖLU
já leist bara svona helvíti vel á þessa hugmynd hjá þér en keypti alveg helling af varahlutum í dag á annað hundrað þúsund svo Súkkan fær dekur um helgina Suzuki Sidekick jx 35" ''Ísbjörninn''