Ég hef verið að draga þessa kynningu þar sem ég er ekki enn kominn með súkku en ég bara get ekki dregið þetta lengur þar sem ég er orðinn húkt á þessa síðu =P
En ég er að leita og er bjartsýnn á að ná einhverjum "góðum" bíl fyrir veturinn
En allavega, Hafsteinn heiti ég og er fæddur á því merka ári 1992. Ég bý í Reykjavík en á í horn að sækja í Borgarfjörðinn. Ég hef verið með súkkuveikina í amk 2-3 ár, og loksins ætla ég að láta af því verða að fá mér grip. Ég hef aldrei átt suzuki jeppa, en félagi minn á Suzuki Fox sem er í mjög döpru ástandi og þarfnast stöðugs viðhalds (hangir saman á ryði í orðsins fyllstu merkingu). Hann er ekkert svakalegt "fan" af þessum bílum og nennir voða lítið að gera í honum, en súkkan er alltaf sett í gang á veturna og skrölt af stað þegar snjóar (og gert við nokkrum sinnum)
Ætli maður verði ekki að láta þetta duga í bili þangað til maður dettur niður á eitt stykki Foxara/samurai. Þá kem ég pottþétt með þrusu kynningu á bæði mér og ökutækinu.. =)
Tjah, ég er meira fyrir gamla góða foxinn/sammann.. Vil helst eitthvað sem ég get gert við og gert upp sjálfur. Gert við með grjóti og breytt að vild..
ég veit um V6 vitöru sem er til sölu, ég ætlaði að taka myndir um síðustu helgi og auglýsa hana fyrir frænda minn en gleymdi myndavélinni. reyni bara að redda myndum sem fyrst
Heyrðu nei, hún er ekkert breytt en hún átti að fara í breytingu og var búið að kaupa dekkjagang undir hana, en svo náðist að snúa drengnum þannig að hann keypti eina 37" breytta í staðinn