Online

Welcome

Chatbox

Poll

Velkomin/n á Sukka.is, vefsíðu Sambands Íslenskra Suzukijeppaeigenda.
Þú ert EKKI innskráð/ur. Til að nýskrá þig getur þú smellt HÉR

Eftir innskráningu getur þú tekið þátt í umræðum á spjallinu og skrifað skoðun þína við fréttir á forsíðunni.

Ef einhver vandamál koma upp við skráningu eða við síðuna yfir höfuð, hafið samband við Saebbi at gmail.com
Súkka.is 13 ára!
Það var á þessum degi fyrir 13 árum síðan sem ungur súkku-unnandi tók þá ákvörðun í samráði við nokkra félaga SÍS (Sambands Íslenskra Súzukieigenda) að stofna heimasíðu og spjallborð.

Segja má að virknin á spjallborðinu hafi verið mikil meðan forsprakkarnir voru fullir eldmóð, en fór dalandi bæði með tilkomu aukinna vinsælda Facebook hópa svo og dvínandi áhuga forsprakkanna á Suzuki jeppaeign. Þar með talið hjá undirrituðum.

Þó er það svo að allir bera virðingu fyrir bernskubrekunum og er uppihald þessarar vefsíðu sem þó er aðallega til aflesturs frekar en skrifa í seinni tíð til marks um þá virðingu. Nú er raunar þannig fyrirkomið að undirritaður er aftur orðinn Suzuki jeppaeigandi og því aldrei að vita hvort virkni færist á smíðaþráð á vefnum innan tíðar... sjáum til!

En súkka.is er komin á táningsaldur, skál fyrir því!

Sævar on Thursday 28 April 2022 - 16:52:20 | Read/Post Comment: 0
Súkka.is komin á skrið!
Júlíus Þór Bess Ríkharðsson hefur boðið fram hjálparhönd við að halda síðunni okkar á lífi, færum honum þakkir sjá umræðu á spjallborði

hér
Sævar on Tuesday 22 November 2016 - 18:49:35 | Read/Post Comment: 0
Súkka.is sjö ára
Nú er liðinn sá tími að súkka.is er að klára fyrsta grunnskólabekk, alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og allt það.

Hér tek ég saman nokkra af þeim þráðum af spjallinu sem mér hafa þótt hvað skemmtilegastir í áranna rás

ath. að margir skemmtilegir þræðir eru búnir að týna öllum myndum, sem er synd og skömm

Ég tel því upp þá sem enn hafa virkar myndir

Langjökulsferð milli jóla og nýárs 2009

Lókur í laug jan. 2010

Suzuki LJ-80 af austfjörðum

Einar Sveinn frumsýnir LJ-10 bíl sinn m.a.

Gísli Jeepson var ansi duglegur að setja inn myndir af vestfirskum súkkum í snjó

Súkkur á Egilsstöðum

Hólmar Hornfirðingur fór að eldgosi við Fimmvörðuháls 2010

Fleiri myndir frá Fimmvörðuhálsi

Súkkur landsins, margar myndir eru óvirkar því miður

Monster Jimny

Gísli Jeepson kynnir okkur fyrir Siglfirðingnum Guðna Sveins, frásögn


hægt væri að halda nær endalaust áfram, t.a.m. er spjallflokkurinn breytingar og smíði ofl. með 17 blaðsíður af þráðum... Endilega bendið á skemmtilega þræði í komment og ég skal setja þá hér fyrir ofan




Sævar on Thursday 28 April 2016 - 08:32:58 | Read/Post Comment: 1
Súkka.is risin upp frá dauðum
Sukka.is hefur nú legið niðri í 380 daga, lítið hefur verið spurt um hana en nú býðst öllum að nálgast upplýsingar á síðuna á ný, hér er ógrynni af myndum og upplýsingum um þessa frábæru bíla

Ég hef greitt fyrir lénið sukka.is í ár í viðbót og ef vel tekst til þá held ég þessu opnu áfram, hvet því alla súkku áhugamenn að vera duglega að setja inn myndir og skapa umræðu
Sævar on Saturday 19 March 2016 - 16:02:21 | Read/Post Comment: 0
Gleðilegt sumar
Sælir félagar og takk fyrir síðast, - virkni á síðunni hefur verið lítil og ég verið latur að fylgjast með, eins og sjá má hefur ekkert verið skrifað hér síðan sl. jól

Þetta stendur auðvitað allt til bóta og allt það... sjáum hvað gerist með haustinu þegar súkkumenn flykkjast á fjöll


kv. Sævar
Sævar on Tuesday 22 July 2014 - 14:33:33 | Read/Post Comment: 1
Gleðilega hátíð
Sælt verið fólkið og gleðileg jól og áramót og nýtt ár og allt klabbið og ef þú heldur ekki uppá jól ... gleðilegt whatever .

Vonandi hafið þið gott yfir hátíðarnar og borðið og njótið vel.
AA-Robot on Tuesday 17 December 2013 - 09:57:36 | Read/Post Comment: 0
Kjötsúpukvöld
Fyrirhugað kjötsúpukvöld n.k. mánaðamót hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna óviðráðanlegra aðstæða.

dagsetning nánar auglýst síðar.

Hugsanlega verður haldinn fundur í húsnæði súkkuklúbbsins um miðjan desember.

kv. Sævar
Sævar on Sunday 17 November 2013 - 17:03:49 | Read/Post Comment: 0
Fundur á fimmtudag
FUNDUR


Ég minni ykkur á fund sem haldinn verður á fimmtudagskvöld næstkomandi.

sjá nánari uppls.

https://www.facebook.com/events/440262379411322/?ref=3&ref_newsfeed_story_type=regular
Sævar on Tuesday 15 October 2013 - 19:47:50 | Read/Post Comment: 0
Fundur 17 okt
Fundur verður haldinn þann 17 okt. næstkomandi kl 19.30 í húsnæði klúbbsins við Trönuhraun 2 í Hafnarfirði

boðið verður upp á snakk og gos fyrir þá sem mæta

Aðalefni fundarins eru ferðamál, enginn sérstakur umsjónarmaður verður með fundinum annar en ég, þó ég hafi sjálfur ekki mikið til málanna að leggja en hérna gefst áhugasömum meðlimum tækifæri til þess að kynnast öðrum og bjóða með sér í ferðir.


kv. Sævar
Sævar on Friday 04 October 2013 - 12:49:16 | Read/Post Comment: 0
Suzuki viðburðir á komandi mánuðum
Sælir félagar,

Undanfarið hefur borið á miklu sinnuleysi af hálfu stjórnenda síðunnar hvað varðar uppfærslur og auglýsingar af viðburðum, en það stendur þó til bóta og ætla ég því að boða til fundar á haustdögum.

Dagsetning verður frekar auglýst síðar en ég geri ráð fyrir að fundurinn verði um miðjan október.

Farið verður yfir mál vefsíðunnar og það sem betur má fara, gamlir þræðir rifjaðir upp og lífgaðir við auk þess sem endurskipulagning og útlitsbreyting verður rædd.

Þeir sem áhuga hafa á að sjá um ferðir tengdum suzukijeppaeigendum á komandi vetri, eða hausti mega endilega hafa samband við mig eða aðra stjórnendur vilji þeir fá ferð sína auglýsta hinum almenna suzukijeppaeiganda hér á forsíðunni.

Sjálfur stefni ég á að sjá um amk. eina auðvelda jeppaferð og ef vel gefst með góðum mannskap að fleiri ferðir fylgi í kjölfarið, bæði lengri og styttri.(Allt byggist þetta auðvitað á því að ég nái að klára jeppann minn)


Það er skrítið að vera að skrifa inn frétt hér á sukka.is, síðast gerði ég það í október!

Fylgist með dagsetningu fundarboðsins sem gefin veður út fyrrihluta október.

Með kveðju, -Sævar s. 845 8799

Sævar on Thursday 22 August 2013 - 11:41:30 | Read/Post Comment: 1
Go to page  [1] 2 3 4 5 6 7 8

Nýtt á spjallinu

�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu.