Kvöldið. Er með '97 (mögulega '96 ef það skiptir máli (man það bara ekki alveg)) Vitara og bremsupedallinn tók upp á því að fara að síga heldur neðarlega þegar stigið er á hann. Vaknar reyndar til lífsins þegar hann er pumparður einu sinni til tvisvar. Forðabúrið er er fullt af bremsuvökva þannig að enginn er lekinn. Ætlaði að herða út í en klóra mér bara í hausnum því ég get ómögulega séð hvernig á að fara að því...!
Einhverjar hugmyndir? Annars vegar hvernig á að herða út í, eða þá hvað getur orsakað þetta sig í pedalanum?