Er þetta ekki bara viðnáms elementið í miðstöðinni? veit ekki hvar það er nákvæmlega staðsett í súkku en þetta er líklegast stykki sem er skrúfað á miðstöðina og plöggað í rafmagnstengi. Inní stykkinu eru 3 mislangir vírar/gormar sem eru viðnám fyrir 1. 2. og 3. styrk blástursins. Fyrir 4. styrk er ekkert viðnám. Algengast er að öll viðnámin fara í einu en það þarf greinilega ekki að gerast. Bara prófa að kíkja bakvið hanskahólfið( geri ráð fyrir að miðstöðin sé þar) og reyna að spotta stykkið.