Online

Welcome

Chatbox

Poll

Súkka.is 13 ára!
Það var á þessum degi fyrir 13 árum síðan sem ungur súkku-unnandi tók þá ákvörðun í samráði við nokkra félaga SÍS (Sambands Íslenskra Súzukieigenda) að stofna heimasíðu og spjallborð.

Segja má að virknin á spjallborðinu hafi verið mikil meðan forsprakkarnir voru fullir eldmóð, en fór dalandi bæði með tilkomu aukinna vinsælda Facebook hópa svo og dvínandi áhuga forsprakkanna á Suzuki jeppaeign. Þar með talið hjá undirrituðum.

Þó er það svo að allir bera virðingu fyrir bernskubrekunum og er uppihald þessarar vefsíðu sem þó er aðallega til aflesturs frekar en skrifa í seinni tíð til marks um þá virðingu. Nú er raunar þannig fyrirkomið að undirritaður er aftur orðinn Suzuki jeppaeigandi og því aldrei að vita hvort virkni færist á smíðaþráð á vefnum innan tíðar... sjáum til!

En súkka.is er komin á táningsaldur, skál fyrir því!

Sævar on Thursday 28 April 2022 - 16:52:20 | Read/Post Comment: 0

Nýtt á spjallinu

�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu.