Jújú þetta er rétt giskað. Ég var að eignast þennan fák núna í sumar. Og svona fínt eintak líka. Og jújú þetta eru allt staðir og leiðir sem að ég er og fer gjarnan. Ég var reyndar að fá dekk og felgur undan jimny þannig að ég er vel dekkjaður af svona littlum polla skvetturum. Langar bara í eins stór dekk og ég get komið undir án þess að breyta honum eitthvað. Hef hvorki tíma né pening til að vera að breyta. Svo þarf ég að setja inn myndir af skepnunni. Búinn að taka límmiðana úr gluggunum, setja á hann kastara:) og tala nú ekki um að hann var bónaður. Hressti alveg svakalega upp á orginal ,,ryðvarnargrunnlitaða" lakkið á honum.
þessi er allveg eins og minn, og ef þú skoðar myndin af honum þá sérðu að hann er upphaflega á 31", og lookar flott þannig, eina breitingin var fremsta og aftasta fjaðraklemman var leingd örlítið, sáraeinfalt og kostar ekkert, herna sérðu hann á 31" og sérð lika aðeins glitta í heingslin sem voru leingd örlitið,
límiðin er original en er að vísu ekki leingur það hafa verð gerðar svakalegar breytingar á honum núna, og á original kantana var buið að bæta eitthverjum lista sem var ekki nema kanski 2-3 cm, og felgurnar voru held eg 8" breiðar og dekk 31", 10 á breidd