Ef það á að setja þetta á límmiða þarf að skera tenginguna á milli stimpilkollanna og kúpunnar, hún er bara þarna svo þetta hangi saman þegar það er skorið út í stál. Annars er þetta töff og yrði kúl á límmiða.
ég var að skoða þetta logo og verð að segja eftir vandlega umhugsun þá er ég sammála þessari mynd af stymplum sitt hvoru megin við hauskúpu. Hún á lítið erindi til kvenfólks, sem væri gaman að fá humyndir frá. Ég sem bifvélavirki frá ´72 finnst stymplarnir góð hugmynd einnig hauskúpan, en hún á hugsanlegt ekkert erindi í marga sem vilja hafa logoið meira alþýðlegt eða höfða til stærra hóps, ég sé myndina af jeppunum 6 sem littlum terrier hundum, og einn breskur kunningi minn sagði að væru ekkert annað en '' killer machines'' þ.e. hundarnir . Logoið er gott en mér finnst það þurfa meiri skoðun.þar sem mér sýnist við vera að tala um logo sem mun lifa okkur alla af.
Ég held að það hafi í raun ekki verið hugmyndin að þetta yrði logo klúbbsins, heldur bara hönnun á límmiða sem yrðu í boði. Mér finnst að logo klúbbsins verði að innihalda skammstöfun hans, SÍS, en svo er líka annað mál að kúpumyndin er teiknuð eftir mynd sem fannst á netinu, svo hönnunin er ,,stolin". Verður frábær á límmiða, en ekki opinbert logo klúbbsins.
ég hugsaði mér að hafa hauskúpumyndina sem svona logo fyrir fjallagengið, eins og þau mörg eru með. láta standa svo SÍS undir merkinu. Svo aðra litla gluggalímmiða sem stendur á Sukka.is eða SíS
líst vel á sukka .is Sís er nafn sem stór hluti þjóðrinnar er annað hvort á moti eða með. alltaf gott að brydda upp á nýjum nöfnum. Samband íslenskra Suzukijeppaeigenda er æðislegasta og best heppnaðasta nafn sem ég hef heyrt í 50ár.Skamstafað SíS. svo gamlir félagar úr bændasamtökum geti nú líka verið með, luma nú sjálfsagt á einhverjum Suzuki jeppum bakvið. lát heyra í ykkur drengir. Ég skrifa hér þó ég sé 54 og finnst mjög gaman, enda fínir strákar með þessa síðu. kv.Elís.
Það eru nú hærri tölur í þessum klúbbi, Kolli pabbi minn, einn af stofendum er '50 árg, svo eru allavega 3 sem eru komnir yfir fimmtugt og jafnvel sextugt. Þessi súkkuvírus er alveg ólæknandi
mér, sem stelpu, finnst þetta bara mjög flott logo, finnst það flottara ef eitthvað er hjá Gísla, teiknað með penna á blað heldur en í tölvu með þráðbeinum línum
Endilega að hafa þetta bara allt saman sitt hvora límmiðana, hauskúpan, sukka.is og SÍS þá er bara hægt að raða þessu á bílana eins og hver og einn vill.
En hvernig viljiði hafa límmiðana á litinn?? bara svarta á glæru? eða einhvern lit í þessu?
Endilega að hafa þetta bara allt saman sitt hvora límmiðana, hauskúpan, sukka.is og SÍS þá er bara hægt að raða þessu á bílana eins og hver og einn vill.
Þetta er ótrúlega góð hugmynd. Skrýtið að mér, sem strák, hafi ekki dottið þetta í hug
Svo má til fróðleiks geta þess að heimsóknir á forsíðuna á www.sukka.is eru að nálgast 40.000 í þessum mánuði, úr rúmlega 3000 tölvum. Gaman að fylgjast með hvort hún aukist þegar við erum farin að skarta límmiðum.
Það er ein hugmynd sem ekki hefur komið fram hér og er ekki ný en það er að nota superman merkið með Suzuki S-ið í staðin fyrir það sem er orginal hef séð þetta og það er töff
ég verð bara að vera sammála mörgum hér inni og segja að myndin sem að gísli postaði hér inn er tilvalin sem límmiði á bíla, svolítið röff, en það er akkurat að mínu mati það flotta við myndina
Jæja það vill svo til að mér er búið að leiðast síðustu 2 tímana eða svo þannig ég ákvað að ná í teikniblokkina mína og byrjaði að skyssa upp hugmynd sem mætti nota sem logo eða hvað sem er bara, en ég er ekki með skanna til að skella henni inná tölvuna þannig spurning hvort ég ætti að taka hana með mér á næsta fund ef ég verð ekki búinn að redda henni hingað inn? fínt að hafa fleiri hugmyndir =)