Vantar eitt stk. 33" General Grabber dekk, varð fyrir því óhappi fyrir þó nokkru að eyðileggja eitt slíkt undir frúarbílnum. Á ekki einhver eitt svona hálfslitið eða svo.
Sæll Gunni Já heldur þú að það sé með svipuðu munstri og Grabberinn, er nú aðalega að spá í það, er núna á fínmunstruðu varadekki sem virkar ekki vel ef fer að koma snjór og hálka. Hér er linkur http://www.4x4wire.com/toyota/tech/sipe/before.jpg á síðu þar sem svona dekk er, ef munstrið er eitthvað svipað er ég til í að skoða þetta.
Já ég er að leita að einhverju slíku, alveg sama hvort það heitir eitthvað annað bara ef munstur er svipað. Verð á dekkjum í dag er þannig að ég bara tími ekki að fara að skipta öllum út þar sem þau eru tæplega hálf slitin.