ég hitti nú á franska túrista seint í gærkvöldi upp við kleifarvatn, búnir að pikkfesta sig á frekar nýlegri Grand Vitöru. Snjórinn á veginum náði vel upp að hnjám og þau voru bara að dóla sér í afturdrifinu, og voru búin að riðja svakalegu magni af snjó á undan sér og síðan var sá snjór bara orðinn af góðum skafli sem þau keyrðu inní og festu sig haha. Bauðst nú til að draga þau upp en þau vildu það ekki þar sem að þau höfðu hringt á bílaleiguna og þeir voru að koma. Mætti þeim svo á vel útbúnum f350 á 35" dekkjum á leiðinni og þeir voru ekki beint ánægðir með að þurfa að rjúka út um 10-11leitið í gær haha. Gaman að þessu