Forums
Moderators: ADMIN, Sævar, olikol, gisli, EinarR, AA-Robot, joolli, edit
Author Post
björn ingi
Tue Oct 06 2009, 12:52p.m.
Registered Member #72

Posts: 365
Sælir félagar
Þegar ég skráði mig hér á spjallið þá óskaði ég eftir að gerast félagi, hvar stendur það mál er eitthvað sem ég þarf að gera meira til að þetta gangi í gegn eða???
Annað, ég sá að það á að ræða límmiðakaup á fundinum í kvöld en þar sem maður er nú útálandipakk þá mæti ég nú sennilega ekki en hefði áhuga á límmiðum til að útbreiða fagnaðaerindið til hinna vantrúuðu (aðallega Toyotukalla).

Kv. Björn Ingi sem veit ekki hvort ég er félagi eða ekki
Back to top
gisli
Tue Oct 06 2009, 02:29p.m.
Gísli Sveri

Registered Member #6

Posts: 882
Félagatalið hefur ekki verið uppfært lengi og kannski er helsta ástæða þess að það stendur ekki til að rukka neinn um félagsgjöld.
Þannig að ég held að þú getir með sóma og sann kallað þig félaga (enda frá Súkkuströnd).

Mér skilst að það eigi að prenta svoldið upplag af límmiðum strax, og að þeir muni fást fyrir sérlega sanngjarnt verð. Allur ágóði rennur til klúbbsins, til að fjármagna þessa heimasíðu og að eiga fyrir frekari prentunum.
Við verðum einhvern veginn að koma til móts við þá sem ekki búa í höfuðstaðnum, ætli það væri ekki þægilegast að sá sem sér um heimtur gefi upp reikningsnúmerið sitt og hinir fái svo límmiða/boli í pósti?

[ Edited Tue Oct 06 2009, 02:30p.m. ]
Back to top
björn ingi
Tue Oct 06 2009, 04:19p.m.
Registered Member #72

Posts: 365
Sæll Gísli
Takk fyrir gott svar, ég er þá stoltur félagi í SÍS. Líst vel á að gera þetta með límmiðana svona eins og þú talar um, einfaldast og minnst vesen.

Kv Björn Ingi stoltur SÍS félagi
Back to top
hilmar
Tue Oct 06 2009, 10:06p.m.
Registered Member #24

Posts: 155
Held að það sé best að bíða eftir því að þeir sem pöntuðu límmiða á fundinum í kvöld og koma eftir 1/2 mánuð eða á næsta fundi, klíni þeim á og taki myndir af því fyrir ykkur til að sjá því það eru einhverjar stærðir og 2 litir svart og hvítt.
Back to top
björn ingi
Wed Oct 07 2009, 12:08a.m.
Registered Member #72

Posts: 365
Líst vel á það.
Back to top
 

Jump:     Back to top

Syndicate this thread: rss 0.92 Syndicate this thread: rss 2.0 Syndicate this thread: RDF
Powered by e107 Forum System
�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu. | Designed by Angelus Design