Var að velta fyrir mér hvort eigandinn að breiðu súkkunni væri hér. Ef ekki þá þarf að vinna í því að finna hann og bjóða honum í klúbbinn. En ef hann er hér þá væri fínt að fá fréttir af því verkefni.
Heyrðu, ég held að það sé misskilningur sko. Hélt það fyrst að Ragnar Karl Gústafsson (sá sem á gulu 44" súkkuna) ætti breikkaða/lengda bílinn á bílasýningunni í haust, en svo sagði mér einhver að sá bíll væri á Suðurnesjunum. Hins vegar er rétt að Ragnar er/var að lengja og breikka súkku í Hveragerði en það er víst ekki bíllinn af sýningunni. Suðurnesjamanninn veit ég ekkert um en það þyrfti að grafa hann upp. Ragnari Karli ætti hins vegar hispurslaust að bjóða í klúbbinn.