Fyrsta prentun límiða er kominn í hús, ég límdi á bílinn hjá Sævari til að geta sýnt ykkur hvernig þetta lítur út. Vill fá að sjá pantanir hrúgast inn núna. Við verðum að standa saman og styrkja klúbbinn, Meina það er ekki einu sinni félagsgjald hérna! Ég vill nú fá e-mail frá þeim sem áttu von á limmiðum og ég sendi upphæð á þá til baka. Svo verður hægt að hitta mig heima eða á fundi næst þar sem ég skal setja þetta á bíla fyrir þá sem vilja. Peningamál verða að vera kláruð þegar miðar eru afhentir hvort sem það verði millifærsla á Sukku.is reykninginn sem kemur hér á eftir eða bara í beinhörðum peningum. Reikningurinn umtalaði er svohljóðandi: Banki:528-14-401321 Kt.020990-2609 (Einar Sveinn Kristjánsson) Peningur má fara þangað inn en það verður að taka fram hver er að greiða og/eða prenta út afrit til að sýna.
ÞEIR SEM ÆTLA AÐ KAUPA: SUKKA.IS fæst í 3 stærðum L, M & S L = 60cm*10cm -=- 1000 kr. M = 40cm*7,5cm -=- 800 kr. S = 30cm*5cm -=- 600 kr. Lógo= A4(landskape) -=- 1500
E-mailið er einarsveinn(hjá)internet.is og ég vill vita hvað þið heitið, hvað þið viljið og hvort það eigi að vera svart eða hvítt. Kær kveðja Einar
Já þetta eru hestöfl. En eru þetta minnstu textamiðarnir einar, voru ekki tvær aðrar stærðir? er að spá svo landsbyggðamenn átti sig á möguleikunum í þessu, ég man þetta ekki nógu vel.
ps. man ekki einu sinni hvaða lit ég valdi mér fyrren ég fékk miðana í gær :S
ég kem í bæinn um mánaðarmótin og fjárfesti í svona hjá ykkur strákar. þetta er drullu nett:D:D ég bara verð að fá svona miða ætla tvær höfuð kúpur. og 2 sukka.is Þetta verður fínasta auglysing hérna fyrir vestan. því að ég fer reglulega á ísfjörð og þar eru einhverjar súkkur og svo eru nokkrar hérna á þingeyri
Takk, ég er búinn að leggja inn. Einar þú átt heiður skilinn fyrir að hafa afgreitt þetta mál svona snöggt, það er ekki hægt að ætlast til neins betra í sjálfboða starfi.
Ég veit það ekki strákar mér leist lang best á hugmyndinar sem Björn Ingi kom með sem sagt þessar
nema bara sleppa http// fyrir framan súkka.is mér finst eitthvað svo kjánalegt að vera með hauskúpur og eitthvað því að það eru ekki bara strákar í þessum klúbb heldur fullornir menn líka og þá henta hinir kanski ekki en þetta er bara mín skoðun
Ég er mjög svo sammála Inga með þetta! Mér finnst þetta sjúklega töff og myndi koma fáránlega vel út á húddi eða hurðum. Styð 120% að prenta svona límmiða líka
Búum bara til aðra límiða fyrir öldungardeildina nei djók. ég er 33 ára og fann þetta hauskúpu lógó mér finnst þetta bara töff. veit ekki hvort þetta hefur eitthvað með aldur að gera bara smekk.
Það er bara ljómandi gott ef menn vilja græja öðruvísi miða upp á eigin spýtur, en ég legg til að umræðan verði söltuð þangað til maðurinn sem lagði út pening fyrir þessari prentun sé amk búinn að ná inn fyrir kostnaði. Getum við sammælst um það? Svo er bolaprentun í bígerð, það er engin hauskúpuhönnun þar heldur bara stílhreint og flott súkkumerki, verður kynnt von bráðar.
ég verð að fá soldið af pöntunum til að það borgi sig að panta. ef það sitja bara allir með hönd í nefi þá er ekkert að fara að gerast. Þeir sem eru stoltir af því að vera í þessum ágæta klúbbi eru óbeint skildugir til að merkja bílana sína.. ekki seiga hvað annað þið viljið. allvega ekki strax heldur bara panta.
Málið með þetta SIS dæmi er að smáatriðinn eða letrið er pain og ervitt að setja á. en á hinn boginn væri hægt að láta þetta passa bara á húdd, þá er ekkert smátt letur, þá kostar þetta bara svo
Það er bara ljómandi gott ef menn vilja græja öðruvísi miða upp á eigin spýtur, en ég legg til að umræðan verði söltuð þangað til maðurinn sem lagði út pening fyrir þessari prentun sé amk búinn að ná inn fyrir kostnaði. Getum við sammælst um það? Svo er bolaprentun í bígerð, það er engin hauskúpuhönnun þar heldur bara stílhreint og flott súkkumerki, verður kynnt von bráðar.
Auðvita þarf einar að fá fyrir kostnaðinum það var einginn að tala um annað. En þegar þú segir "ef menn vilja græja öðruvísi miða upp á eigin spítur" ertu þá að meina það að það sé einginn áhugi hjá stjórnendum að skoða fleiri hugmyndir?
EinarR wrote ...
ég verð að fá soldið af pöntunum til að það borgi sig að panta. ef það sitja bara allir með hönd í nefi þá er ekkert að fara að gerast. Þeir sem eru stoltir af því að vera í þessum ágæta klúbbi eru óbeint skildugir til að merkja bílana sína.. ekki seiga hvað annað þið viljið. allvega ekki strax heldur bara panta.
Að sjálfsögðu verður að reina að blása lífi í þennan klúbb og koma honum á framfæri en ef maður er ekki sáttur með límmiðana þá er maður varla að fara að líma þá á bílinn sinn
EinarR wrote ...
Málið með þetta SIS dæmi er að smáatriðinn eða letrið er pain og ervitt að setja á. en á hinn boginn væri hægt að láta þetta passa bara á húdd, þá er ekkert smátt letur, þá kostar þetta bara svo
Það er nú kanski hægt að hliðra undirskriftini og breita henni að vild. Það sem ég er að reina að segja er að það er varla hægt að vera með klúbb sem hefur mörg logo þessvegna er um að gera að reina að sættast á eitthvað eitt, ég veit það alveg að það verða aldrey allir sammála en fyrir mitt leiti er ég alveg tilbúinn að halda mínum skoðunum fyrir mig ef flestir hinna eru sáttir
Svo hefur nú enginn svosem verið titlaður stjórnandi hingað til, bara þeir sem nenna að leggja eitthvað af mörkum, þeir fá einhverju ráðið.
Ég átti heldur ekki við að einhver hefði verið að "tala" um að Einar ætti ekki að fá fyrir útlögðum kostnaði, heldur bara að það væri óþarfi að vera að tala um óhentugleika þessara límmiða í þræðinum sem var stofnaður til að fá menn til að kaupa þá! Eftir allt saman, þá er það hagur allra sem stunda þennan klúbb að límmiðarnir seljist upp, þá er til peningur til að gera eitthvað meira, t.d. fleiri límmiða eða eitthvað. Ástæðan fyrir því að þessir límmiðar voru prentaðir að þessu sinni er bara sú að þeir sem höfðu áhuga á því nenntu að leggja það á sig að gera það. Svo er það líka laukrétt hjá Sævari að þetta var aldrei hugsað sem neitt logo, heldur bara svalir límmiðar til að skreyta Súkkur og auglýsa vefinn. Og ég hvet þá sem ekki vilja kúpuna að taka amk sukka.is límmiða, þeir eru ekki dýrir og trekkja vonandi eitthvað á síðuna.
ég ætla allavega að fá 2 miða með hauskúpu og 2 sukka.is. svo á ég eftir að sýna bróðir mínum þetta og sjá hvort að hann vilji þeta líka. súkkan mín verður notaður sem hversdags bíll og fjölskyldu bíll. og auðvitað til að fara eitthvað svona utanvegar á þannig að ég ætti að vera ágætis auglysing hérna á vestfjörðunum. það eru nokkrar súkkur á ísafirði og eins hérna á þingeyri. svo fer maður reglulega suður þannig að þetta ætti að sjást í hverjum bæ sem að ég stoppa í
Einar ég er búinn að senda þér mail um miðakaup. Það eru tveir möguleikar við að senda þetta út á land, í póstkröfu sem frekar dýrt fyrir svona lítið og létt, hitt er að menn millifæri bara á þig miðaverð+ sendingarkostnað og setjir þetta svo bara í venjulegan póst sem er mun ódýrara.
Ég legg til að sjóðurinn taki á sig sendingarkostnað í venjulegum bréfapósti fyrir landsbyggðamenn, það er í fyrsta lagi ekki mjög dýrt og í öðru lagi er okkar hagur að vera sýnilegir á sem flestum stöðum. 2000kr lágmarkspöntun? Einar, þú mátt ráða. Gegn loforði um að menn lími þetta á og fari strax út að jeppast!