Hef til sölu, að mínu mati, mjög góð negld vetrardekk. Stærðin er 225/70 R16 (28.5" Dekk) og eru á Sidekick Sport 16" orginal stálfelgum í notuðu en góðu ástandi (ekki sem ný, en ekki hand ónýt). Ég skipti um ventla á tveim dekkjum þegar ég setti þau undir og ók á þeim fyrsta veturinn, en það er búið að aka 2 vetra á þessum gang.
Óska eftir raunhæfum tilboðum í pakkann. Sá sem borgar með seðla fyrir mánaðarmót fær góðan díl á pakkanum. Tek það fram að það er fremur lítill áhugi á að selja stakar felgurnar eða dekkin, vill losna við þetta í heilu lagi.
Setti lykil ofan í myndtrið til að sýna dýftina að einhverju leiti, en það er nóg eftir af þessum dekkjum
Ég vill ekki hljóma of "fílósófískur" hér. En auðvitað vill ég fá sem mest fyrir þetta og geri mér grein fyrir því að þið vilduð borga sem minnst
Nýtt náttúrulega kostar þetta helling, en nánast ónýtt svona sett er oft gefins. Þetta er svo sem ekki nýtt, en er líka langt frá því að vera ónýtt. Spurning um að menn bjóði og við finnum einhvern milliveg sem við erum báðir sáttir við. Hægt að senda mér einkapóst hér með tilboð.
Kannski maður segi bara, hvað mynduð þið vilja FÁ fyrir svona gang ef þið ættuð hann?
Sæll. Veit ekki hvernig þetta mál stendur núna, en ég myndi hafa áhuga á þessum dekkjum i tengslum við það að ég þyrfti að selja alveg ný 225/75 dekk, sem ég hef undir Lödu Niva, sem ég á, en eru einu númeri of stór. Ef dekkin þín eru ennþá föl á sanngjörnu verði myndi ég prófa að selja mín.
Ég hef engin svör fengið frá Artost. Þannig að dekk/felgu pakkinn er enn til sölu. Ég minni á að ég er að reyna losa þetta sem pakka af dekk og felgur en ekki í stöku. Nú man ég ekki gatadeilinguna á Löduna hvort hún passi á milli. En þú gætir sent á mig einkapóst með tilboð eða við rætt verð þar ef þú vilt.
Suzuki og lada sömu felgur, reyndar er felgumiðjan breiðari á súkkunni en það þyðir samt bara að lödufelgur passa ekki á súkkur en hin leiðin er mjög einföld ef notaðar eru kónískar felgurær sem miðjustilla felguna.