Heilir og sælir allirsaman! Gunnar Pétursson heiti ég, (h)eldri bróðir Aríels Péturssonar nokkurs súkkueiganda. Ég var loksins að fá í hendurnar fyrir nokkrum dögum forláta Jimny 2000 árgerð. Hann er breyttur fyrir 33", en er eins og er á 31". Stefni á að smella 33" undir hann í sumar eða haust, og ræddi við súkkumann um daginn um að lækka hlutföllin á honum að sama skapi við gott tækifæri. Ég hef samt enn sem komið er afskaplega lítið vit á þessu sem algjör byrjandi. Ég átti Terrano (terror NO) á 33" fyrir um ári síðan sem nýttist í lítið annað en að vera veiðibíll og eyðslutunna mikil..
Þar sem ég er hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarkona að mennt og vinn á bráðasviði hef ég nú eytt síðustu árunum í að laga fólk frekar en bíla, og hef því afskaplega takmarkaða þekkingu á því að laga slík apparöt. Því stefni ég á að læra eins mikið og ég get af mér klárari mönnum,og þessi vettvangur virðist vera frábær til þess að fá ráðleggingar og læra um þetta stórmerkilega apparat sem súkkan er.
Svo finnst mér líka ógeðslega gaman að skoða landið, og því óska ég hér með eftir inngöngu í félagið og hlakka til næstu ferða, ef slíkar verða á næstunni!