Haha hver hérna á hvítu vitöruna sem að var að keyra niður laugaveginn í nótt og það dó á bílnum fyrir framan Dillon? Þurfti nokkrar sætar stelpur til að ýta súkkunni í stæði (að sjálfsögðu komu sætu stelpurnar í það, enda súkka)
haha já ég var eitthvað í tröppunum á dillon að spjalla við fólk og e-ð og sé þessa fínu súkku, merkt sukka.is koma niður laugaveginn og við lítum e-ð allir við (tveir stoltir súkkueigendur í hópnum) og svo bara drepst á greyinu.. reyndar sá ég hann svo einhverjum tíma seinna alveg við sólon og þar held ég í góðum gír á rúntinum,.. og þá voru stoltu súkkueigendurnir sáttir með sinn mann sko!
vélin hjá mér fékk ekkert bensín og vildi ekki haldast í gangi. ég reif bensín slönguna framm í húddi úr og blés í hana og saug síðan bensínið upp þá rauk hann í gang. komst síðan að því í dag að bensín sían er alveg stífluð engu líkara en það sé steinn þar inni að stífla en ég á aðra og hún fer í á morgun.
samt fyndið að þetta er samt held ég það eina sem ég man þetta kvöld, þ.e.a.s. að sjá súkkuna drepa á sér beint fyrir framan mig og skvísurnar að ýta henni í stæði