Við félagarnir skelltum okkur kaldadalinn , við fórum á sitthvori súkkuni, löng á 31" og stutt á 33". Svo bættist í hópinn 35" pajero og svo 38" ranger.
Súkkurnar komu mikið á óvart, ég gerði mér lítið fyrir og festi mig aldrei, annað en pajeroinn . Megnið af ferðinni var haldið súkkunum í botni og brunað upp brekkurnar.
Við lentum í slæmu skyggni, en það batnaði seinna um daginn en þá fór að dimma.
Þessi ferð var sú fyrst á nýju súkkunum hjá mér og Birki sem er hér á spjallinu.
SNJÓINN VANTAÐI EKKI!
Rangerinn misti smá vatn þannig að eigandinn pissaði aðeins inná vatnskassan, ég heyrði að lyktinn var ekkert góð þegar hann ofhitnaði aftur.
Er loksins búinn með bílinn hjá mér vélinn fór oní í gær nú er bara að fínpússa hana inn í skúr, svo vonandi kíkt eitthvað næstu helgi þó svo það væri ekki nema bara með frammdekkinn í snjóinn:P
http://194.144.13.19/e107_plugins/forum/forum_viewtopic.php?21771 þetta er bara kynning frá eiganda, annars er margt búið að gera eftir að hann fékk bílinn, honum tókst á fyrstu mánuðum að brjóta lokur og bæði drifin hjá sér . Svo er búið að styrkja hjólabúnaðinn að framan, og fleira og fleira