Lagar að fá ykkar álit takið þið eitthað saman hvað á að eyða í varahluti keypti Súkku Vitara árg 1998 fyrir 1mán á 150þús búinn að eyða 140þús í bílinn á 1mánuði þetta er bilun????????
eru menn að tala um varahluti eða verkstæðisvinnu og varahluti þetta eru frekar háar upphæðir og þið hljótið þá að vera kaupa parta af dýrari gerðinni. svo nátturulega eiga menn að skoða bílana vel áður enn menn kaupa
Kúplings sett 40k klava gúmmi 15k spindlar 15k B/m tímareim 10k strekkjari 5k vatnsdæla 17k púst skynjari 30k kveukjulok 5k hamar 5k þræðir 15k Heddpakning 10k pakkdósir mótor og kassi 15k hjólalegur 20k B/m Heilt bremsu sett í afturhjól með barka 30k þetta er aðeins rjómin af því sem var að þessari græju, og fyrir utan þennan venjulega rekstrarkostnað (olíur bremsuklossar og annað)
fer að verða góður sammt eftir vélarskipti og annað dútl keipti minn í frekar döpru ástani, svo sjáum við bara hvað þetta endist nú þegar hann er orðin góður =)
Ég held að þetta hljóti að vera jafn breytilegt og bílarnir eru margir, hvernig ástandið er á þeim og hvað okkur eigendurna langar að gera eða eyða í þá.
Ég verslaði mína súkku svona í byrjun sem millibils ástands bíl sem ég vissi samt að ef allt annað klikkaði, væri ég samt mjög sáttur með og gæti farið í víðtækar breytingar ef ég vildi. En minn var alveg orginal þegar ég kaupi hann.
Ég hef mögulega eytt meira en margur annar hér í minn bíl og sé persónulega ekki eftir krónu af þeirri eyðslu. Því sú eyðsla hefur skilað mér frábærum bíl með lítið viðhald í framhaldi, drífur ótrúlega og veitir mig mikla ánægju bæði í daglegum akstri og ég segi nú ekki hvað hann er skemmtilegur í utanbæjar akstri (ófærð/hálendið). En við skulum bara orða það þannig að ég er með 2 dekkja/felgu ganga 33" sem hvor um sig er á 450-500.000 og mögulega tvöfalt það í verði á breytingum og viðhald síðustu 9 ár. Sumir segja klikkun. ég mæli þetta frekar í ánægju og þetta er áhugamál og della... Bíla della
Mig aftur á móti hryllir við hugsunina hvað hefði orðið ef ég hefði ekki farið þessa leið... Að eyða svona í þennan bíl á mörgum árum, því fyrir hrun var ég næstum því búinn að kaua mér nýjan úr kassanum jeppa á erlendu láni. Úffff. Þá hefði ég mögulega farið á hausinn hvað afborganir varðar. Ekkert komist á fjöll og ekki haft næstum því jafn mikla ánægju af jeppamennsku.
En þetta eru allt vangaveltur sem hver og einn þarf væntanlega að gera upp við sig sjálfur hvað hann/hún vill og hvert maður er að stefna með sitt ökutæki Bara svona mitt innlegg.