Það fer aftur á móti allt eftir því hvað þú ert tilbúinn að leggja mikið á þig og hvað þú vilt borga fyrir það í efni og mögulega vinnu. 1.8, 2.0 og 2.3 vélarnar flestar frá Suzuki eru svipaðar og ekki erfitt að víxla milli flesta bíla sem koma orginal með einhverja af þeim vélum.
1.3 og 1.6 vélarnar eru svipaðar að sama skapi í grófum dráttum. En mitt persónulegt mat að fara úr 1.6 í 2.0 er stórt hvað varðar breytingar, tíma og efni. Þú þarft að skipta um allt sem stýrir vélinni, ekki bara skipta um vél (vírar og stjórnbox). En vélin ætti að passa í bílinn og þetta er vel framkvæmanlegt.
þú getur notað 1.6 gírkassa aftan á 2 lítra vél. hinsvegar þarf að rennafóðringu inni swinghjólið því öxullinn í kassan er grennri en í 2 lítra bíl. man ekki hvort þurfti að stytta öxulinn lítilega. Þú þarft að skipta um vélartölvu og allt vélarrafkerfi, og smíða mótorfestingar.
ég er einmitt að skipta um heddpakkningu í 2 lítra vél núna og sé fátt sameiginlegt með þessum vélum fyrir utan að soggreinin lítur svipað út.