Forums
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda :: Forums :: Almennt spjall :: Kynning
Benedikt Þorgeirsson << Previous thread | Next thread >>
Moderators: ADMIN, Sævar, olikol, gisli, EinarR, AA-Robot, joolli, edit
Author Post
súkkrules
Wed Jan 20 2010, 09:47p.m.
Registered Member #219

Posts: 12
Sælir

Afar gaman að sjá þessa síðu og áhugan á Suzuki!

Ég hef sjálfur átt fjórar súkkur.

Sú fyrsta var 1991 módel af stuttri Vitöru, annar bíllinn sem ég eignaðist og sá bíll sem kveikti jeppaáhugann, jómfrúarferðin var á Úlfarsfell og flestar ferðir voru farnar um Úlfarsfell og nágrenni enda var maður ungur og vitlaus og rataði varla uppá Þingvelli.
Ég duddaði einhver ósköp í þessum bíl, aðalega útlitslega séð en þessi elska var gjörsamlega ódrepandi og ég seldi hann loks á Djúpuvík og ég held að hann sé enn þar í eigu sama manns.
Því miður var þessi bíll í minni eigu fyrir tíma digital vélanna svo það er bara til ein mynd.


Það var mikið hlegið að mér í vinahópnum vegna skóflunnar á toppnum en mér sýnist þetta vera orðið eitthvað trend í dag, stuttar súkkur með skóflu á toppnum
Þegar ég seldi hann var hann svo filmaður alla leið og orðinn helvíti gæjalegur.

Svo leið smá tími á milli þessarar og næstu Súkku en það var svo einn fyrsti Jimnyinn sem fór á 33" breyttur af Fjallasport, þessi bíll var með allskonar aukadóti, tölvuborði, takkaborði með fullt af tökkum til að fikta í, Webasto bensínmiðstöð, Xenon kösturum ofl ofl



Hann rúllaði svo yfir hjá mér og fékk smá Facelift.




Ferðirnar lengdust á þessum og fór ég víða oft með littlu deild f4x4 meðal annars í eftirminnilega ferð í Landmannalaugar þar sem hann hékk í og lék sér með V8 Ameríku tröllum á 38-44" túttum eigendum þeirra til lítillar gleði.
En mér fannst alltaf stutt í veltutilfinninguna á honum svo ég seldi hann..

Næsta Súkka var FULLORÐINS!

V6 Grand Vitara á 35" Suzuki+afl!! Góð blanda! Snilldar bíll sem dreif endalaust!
Honum var fórnað fyrir íbúðarkaup


Svo hefur jeppaferillinn seinastu 3 ár verið drifinn áfram af 36" 4Runner 1988 Módel sem ég var að enda við að selja með tárin í augunum.




Mitt fyrsta verk eftir að hafa selt 4Runner var að kaupa Vitöru, 1993 módel sem kannski margir hafa séð auglýsta á L2C vínrauð á svörtum felgum 5 dyra óbreytt.
Samstarf okkar byrjaði ekki mjög vel en bensíndælan aftengdist undir grind í morgun og eyddi hann deginum að þyggja ausur frá ökumönnum Sæbrautarinnar.
Þarf að kippa tankinum undan og plögga þessu í lag.
Annars er bíllinn mjög þéttur, búið að skipta um blokk og hann er mjög þéttur og kraftleysið í minningunni af gráa er gefið langt nef á þessum en 28" dekkin spila sennilega hlutverk þar.
Ég ætla eitthvað að snýta honum til og sjá til hvað verður gert.
Á enga mynd af honum eins og er.

Ég á svo slatta af gömlum myndum úr hinum og þessum ferðum sem ég kannski hendi inn við tækifæri.

Preview

Dr Skítmix




Og svoleiðis er það.
Back to top
metalice
Wed Jan 20 2010, 10:19p.m.
metalice
Registered Member #228

Posts: 106
Glæsibílar og flottar myndir.
Back to top
jeepson
Wed Jan 20 2010, 10:21p.m.
jeepson
Registered Member #88

Posts: 1739
Sæll og velkominn. en þessi súkka sem þú keyptir núna. Keyptiru hana nokkuð frá Hellu?
Back to top
BergurMár
Wed Jan 20 2010, 10:53p.m.
Bergur Már Óskarsson
Registered Member #181

Posts: 123
Skemmtileg lesning og flottar súkkur, sérstaklega sú fyrsta !
Back to top
súkkrules
Wed Jan 20 2010, 11:21p.m.
Registered Member #219

Posts: 12
jeepson wrote ...

Sæll og velkominn. en þessi súkka sem þú keyptir núna. Keyptiru hana nokkuð frá Hellu?


Já, keypti hana frá Hellu?? Þekkiru til hennar?

Það voru margir búnir að hringja en allir settu ferðin austur fyrir sig.

[ Edited Thu Jan 21 2010, 12:09a.m. ]
Back to top
jeepson
Thu Jan 21 2010, 12:08a.m.
jeepson
Registered Member #88

Posts: 1739
Sá sem seldi þér hana er algjör bíla braskari og refur hann fékk þennan bíl á 90 þús fyrir innan við ári. hann er þekktur fyrir að kaupa bíla á skít og kanil og selja þá mjög dýrt. Ég heyrði að hann hafi verið í einmtómu basli með þessa súkku. En vonandi hefur hann ekki logið of miklu af þér. Hann vildi kaupa landrover freelander af mömmu og pabba og þau sögðu að það væri ekkert mál hann gæti fengið bílinn á 250þús full skoðaðan og á nýlegum heilsárs dekkjum. en honum fanst það of mikið. því að þetta væru svo lélegir bílar sagði hann. en hann vissi líka að hann gæti selt bílinn á 350þús en vildi bara fá hann á 100þús til að græða sem mest á honum. Ég vona bara að þú verðir ekki fyrir vonbrigðum með bílinn. og vonandi stenst alt með hannþ Og vonandi er hann ekki að ljúga að það sé ný blokk í honum. kallinn er ágætur en ég myndi ekki kaupa bíl af honum þá svo að ég fengi borgað fyrir það. Hann átti t.d pajero sport. og þegar glóðarkertin fóru í honum þá setti hann bílinn inn í skúr svo að það væri auðveldara að koma honum í gang og svo þegar bíllinn hröklaðist í gang á morgnana þá var alt staðið í botni í nokkrar sek til að hann myndi hitna hraðar. HALLÓ!!!! maður setur ekki kalda vél í botn. ég hef það allavega sem reglu hjá mér að mínir bílar fara ekki yfir 2000-2500 þegar þeir eru kaldir. En hann setti bara alt í botn og svo var keyrt af stað. en gangi þér samt vel bílinn. smá forvitni. hvað fékstu bílinn á mikið.
Back to top
súkkrules
Thu Jan 21 2010, 12:14a.m.
Registered Member #219

Posts: 12
Frændi hans átti þennan bíl, búinn að eiga hann í 6 mánuði, námsmaður frá Chile.

Varðandi blokkina þá talaði hann ekkert um það heldur er það merkt inná smurbókina ásamt tímareimaskiptum og það var gert fyrir einhverjum árum síðan.

Eina sem hann talaði um að það eru nýjir diskar og klossar að framan.
Back to top
einarkind
Thu Jan 21 2010, 12:19a.m.
einarkind
Registered Member #56

Posts: 244
flottir bílar og vertu velkominn greinilega alvöru suzuki maður hér á ferð
Back to top
jeepson
Thu Jan 21 2010, 12:21a.m.
jeepson
Registered Member #88

Posts: 1739
okey. sko systir mín þekkir strákinn sem átti bílinn semsagt þennan frá chile og hann var eitthvað að tala um það við hana að það væri búið að vera endalsut vesen á bílnum. systir mín og kærastinn hennar eru að leita sér af súkku og þega ég sá þessa auglýsta að þá sagði ég þeim að fara og bjóða 100kall í hana en þá sögðu þau mér frá því að þeir höfðu verið að selja hana útaf því að það væri bara vesen með hana. En vonandi verður ekkert vesen á bílnum. það er bara svo svekkjandi að kaupa frá svona bröskurum sem vilja bara græða á öðrum og er skít sama þó svo að aðrir sitji svo uppi með bílana sárir.
Back to top
EinarR
Thu Jan 21 2010, 09:38a.m.

Registered Member #52

Posts: 1421
Velkominn, það þíðir ekki að svekkja sig á eitthverjum svona drullusokkum. þú ferð bara vel með bílinn og nýtur hanns í botn. spurning samt. átti birgir þennan vínrauða/bláa Jimny á undan þér?
Back to top
gisli
Thu Jan 21 2010, 09:43a.m.
Gísli Sveri

Registered Member #6

Posts: 882
Ég held að Birgir Björn hafi ekki einu sinni verið með æfingaleyfi þegar Benni átti Jimnyinn.
Back to top
Súkkuslátrarinn
Thu Jan 21 2010, 09:56a.m.
Súkkuslátrarinn
Registered Member #19

Posts: 47
Velkominn, Hrikalega flottur 4runner hjá þér, hefði nú ekki týmt honum fyrir óbreytta súkku !
Back to top
súkkrules
Thu Jan 21 2010, 10:13a.m.
Registered Member #219

Posts: 12
EinarR wrote ...

Velkominn, það þíðir ekki að svekkja sig á eitthverjum svona drullusokkum. þú ferð bara vel með bílinn og nýtur hanns í botn. spurning samt. átti birgir þennan vínrauða/bláa Jimny á undan þér?



Nei það var maður á miðjum aldri sem átti hann..

Annars er ég voða lítið svekktur, var nú ekkert hónaður alvarlega í þessum kaupum, tel þetta vera ágætasta bíl, virkar mjög þéttur þar að auki græddi hann nú engin ósköp á mér, nýtt í bremsum aðframan, klossar+diskar. Nú ef hann græddi gott hjá honum, til þess er leikurinn gerður

Varðandi það að fórna Toy fyrir Súkkitz auðvitað er það spes en ég var bæði farinn að hjakka í sama farinu með Runner og svo var hann hreinlega bara of dýr í rekstri til að nota hann 99% upp og niður Sæbrautina á leið í vinnu.
Back to top
EinarR
Thu Jan 21 2010, 12:00p.m.

Registered Member #52

Posts: 1421
Nú, en samt vel séð að fórna svona traktor fyrir eðalvagn
Back to top
jeepson
Thu Jan 21 2010, 03:25p.m.
jeepson
Registered Member #88

Posts: 1739
Hahaha EinarR ég er hjartanlega sammála þér
Back to top
 

Jump:     Back to top

Syndicate this thread: rss 0.92 Syndicate this thread: rss 2.0 Syndicate this thread: RDF
Powered by e107 Forum System
�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu. | Designed by Angelus Design