Ég er búinn að redda mér (bara eftir að sækja) 1600 vél sem ég ætla að setja í samurajinn hjá mér. Vélin er að mig minnir í sidkick bíl... EN það er ekki orginal vélin í þeim bíl og eigandinn mundi ekki úr hvernig sukku vélin kom... það pössuðu ekki öll plöginn þanig að ekki er allt teingt en hægt að láta hana ganga þó ekki sé hægigangurinn fallegur.
Og þá kemur stóra spurninginn hvernig er þægilegast fyrir mig að komast að því úr hvernig bíl þessi vél kom? er hægt að finna númer á vélinni og fletta upp öllu út frá því??
Ef þú ætlar að redda þér rafkerfi úr svipuðum bíl þá væri þér næst að fá soggrein með rafkerfinu, þá eru öll þín vandamál leyst, svo lengi að tengi á kveikju séu eins
Ef soggreinin og kveikjan fylgir bílnum sem þú færð þá lendirðu pottþétt ekki í neinum vandræðum
Ég er ekki viss um að þu getir fundið uppruna vélarinnar með því að fletta henni upp, en svo er það nú bara málið að það eru til uþb. 7 rafkerfi mismunandi í þessum árgerðum af súkkum og þau virka ekki saman, hinsvegar passa soggreinar yfirleitt á billi heddanna með örfáum undantekningum og þá eru blokkirnar alltaf þær sömu
Bílinn sem ég fékk var set ný vél í og átti að gera hann upp en var aldrey klárað.
Vélin sem er í bílnum passar ekki alveg við rafkerfið. Hún var set í og það passaði ekki alveg, sá að 2 nemar voru ekki teingdir og fann 2 plögg ekki í sambandi. en vélin fer í gang en gegnur reindar ekki alveg rétt og vélarljósið logar.
Ætti þá ekki að vera hægt að mixa rafkerfið og vélina saman??
ábyggilega, það gæti reynst erfitt fyrir okkur að svara því, sú lausn sem ég stakk upp á er eflaust ákjósanlegri nema þú getir svarað þinni spurningu sjálfur, og kannski greint hvaða skynjarar það eru sem ekki passa við tengingarnar og hversu mikilvægir þeir kunna að vera
Skinjararnir sem ég sá eru: framan á soggreininni efst eru 2 eins vakumnemar með 2 pinna tengi og 2 eða 3 vakumleiðslur frá þeim... annar þeirra var ekki tengdur. Svo var annar fyrir 2 pinna tengi réttfyrir neðan við vaslásinn... örlítið neðar og til vinstri við hitaneman... held reindar að ég hafi seð plögg sem gæti farið hann ef leiðslan er lögð öðruvísi að honum
Þarf að legjast yfir teikningar þegar ég verð búinn að ná í bílinn svo maður hafi allt viðhendina og vonast til sð maður skilji þær... hehe
Borgar sig líklega að taka vélina ekki úr bílnum fyrr en maður hefur fengið hana til að ganga eins og maður vill
Hvernig ætli sé að fá tölvu til að lesa svona bíla og hvað ætli þær kosti? borgar sig líklega að hafa eina við hendina þegar maður fer í rafmagnið
Þessir tveir rofar eru ekki alls kosta mikilvægir, annar er "púlsari" fyrir afgas á bensíntank og hann skammtar vacúm inn á bensíntankinn þegar vélin gengur yfir 1400 sn á mín
Hinn stillir vacúm inn á bensínþrýstingsrofa og opnar þennan rofa svolítið þegar bíllinn gengur hægagang
Ég fék hana frá US ásamt vélafestingum og boltum... Er ekki með verðið á hreinu en get reint að grafa það upp... kostaði slatta... EN það líka tók enga stund að skella vélinni í og allt smellpassaði.
Þegar men hfa verð að setja 1600 vélar með inspítingu í samurajinn hvaða bensíndælur hafa men verið að nota?? það er bensíndæla í tanknum fyrir þessar vélar orginal... eru menn að nota þær eða??
Á einhver eða getur bent mer á upplýsingar um tölvuna í vitöru 1997? það er mig vantar að fá upplýsingar umþað hvað hver pinni í plögginu gerir... listi væri góður en teikning enþá betri
Það eru til nokkrar gerðir af tölvum í þessa bíla og því þarft þú bara að leggjast í rafmagnsteikningarnar og bera saman við pinnafjöldann í tölvunni hjá þér......
Þanig að ég nota lagnirnar sem eru í samurajinum, færi tek dæluna úr tanknum á vitörunni og fæ extragóðar klemmur í samurajinn og allt verður eins og best verður á kosið... flott...