Það brotnaði hjá mér afturdrifið og er í vandræðum að finna annað. Bíllinn er fluttur inn frá Kanada þannig að hann er með annað hlutfall en sambærilegir bílar hérna á Íslandi.
Ef ég man rétt þá gæti "96-"98 Dísel 2.0L Vitara 5dyra jeppinn verið með sömu 4:30 hlutföll. Annars ef ekkert gengur þá er hægt að tékka á Altered Ego Motorsport í Kanada. Ég get hiklaust mælt með þeim og hef marg oft verslað við þá.