Ég þarf að eignast sveifarás sem er í lagi (ekki einn sem þarf yfirstærð af legum) fyrir 2.0L Grand vitara vél. Ef einhver er með eða telur sig vita um þannig þá má endilega hafa samband við mig.
Ég hef þetta á bakvið eyrað... Ég er nefnilega með J20 vél sem ég er búinn að gera upp frá grunni með nýja stimpla, hringi, Ventla, undirlyftur, olíu & vatnsdælu, allt tímakeðju dótið og strekkjarar og leiðarahjól. Allar pakkningar að sjálfsögðu, 1mm yfirborun, ný Iridium kerti, ný háspennukefli og svo framvegis. Ég þarf í raun bara sveifarás með réttum tannafjölda þar sem tannafjöldin er mismunandi milli suma véla. Ég get ekki lagt kr. 80.000 til viðbótar þessa hundruði þúsundkalla sem ég hef nú þegar farið með í vélina, því miður.
Er einhver með 1.8L (J18a) vél eða sveifarás? Það sem mig raunverulega vantar er bara tannkrannsinn sem er á sveifarásnum sem sveifarás skynjarinn notar við talningu. Þannig að tæknilega séð mætti sveifarásinn vera úrbræddur eða brotinn jafnvel, bara svo lengi sem þessi tann krans er í lagi þá hef ég áhuga.