Forums
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda :: Forums :: Almennt spjall :: Almennt spjall
Á einhver J23 Súkku vél eins og er t.d. í Aerio (Liana) ? << Previous thread | Next thread >>
Moderators: ADMIN, Sævar, olikol, gisli, EinarR, AA-Robot, joolli, edit
Author Post
Tryggvi
Thu Apr 18 2019, 08:45a.m.
Registered Member #356

Posts: 200
Góðan daginn, ég er að velta fyrir mér hvort einhver viti af Suzuki Aerio (Liana, heitir hún oft hér á landi) sem er með þennan 2.3L mótor J23. Ef svo er þá hef ég áhuga á þeim mótor eða bíl svo lengi sem vélin er gangfær (Og ekki ónýt), má vera slitin og þarnast minniháttars viðhalds.

Kveðja,
Tryggvi
Back to top
joolli
Sat May 09 2020, 12:40a.m.

Registered Member #1213

Posts: 11
Held að bílar með þessari vél hafi ekki verið seldir hér á landi. Líklega hafa þeir fyrst og fremst verið seldir í Ástralíu markaði og kannski USA.
Back to top
Tryggvi
Thu Feb 25 2021, 07:00a.m.
Registered Member #356

Posts: 200
Takk fyrir svarið... Ég hafði fyrir því að panta eina svona vél frá VESTUR strönd Canada (sem kostaði því miður EKKI lítið) og var mun flóknara en ég taldi. Það þurfti einhver leyfi fyrst að koma vélina yfir landamærin til USA, síðan til N.Y. til að koma vélina heim. En hún er komin í Súkkuna og virkar þokkalega. Enda yfir 40+ fet-pund af togi til viðbótar og á 500 RPM lægri snúning miðað við 1.8 orginal vélina.

Núna er bíllinn í alsherjar endursmíðun. Bókstaflega! Það er búið að endursmíða báðar aftur hjólskálarnar, fram gólfið, part af hvalbak, partar af gólfinu hér og þar, hornin að ofan báðumegin að aftan við þakið og svo mætti lengi telja. Allar 4 hliðar hurðarnar nýjar úr umboðinu og góðan aftur hlera af öðrum bíl og sömuleiðis grill. Það eru komnir fleirri hundruð vinnu stundir í Súkkuna sem verður sprautuð í nýjum litum og verður vonandi tilbúinn fyrir sumarið.
Back to top
Tryggvi
Wed Jul 16 2025, 10:24a.m.
Registered Member #356

Posts: 200
Súkkan mín er orðin alveg geðveikt flott núna... Orðin Royal Blue á litinn með Ttanium Smoke vel sanseraðan lit á neðri-part... Lítur hrikalega flott út... Það eru svo mörg lög af sprautun af lit og svo af glæru að liturinn lítur alveg geðveit flott út og djúpur. Þetta er orðinn eiginlega sýningarbíll hvað útlit og gæði varðar!

Núna verð ég að spyrja, er hægt að setja inn myndir hér og fyrst það er búið að vera svona langt síðan ég gerði það... Hvernig ber ég mig að við að setja inn myndir?

Kveðja,
Tryggvi
Back to top
joolli
Wed Aug 20 2025, 08:04p.m.

Registered Member #1213

Posts: 11
Nei, því miður er ekki hægt að setja myndir beint hingað inn. Ég reyndi mikið að finna leiðir til að uppfæra kerfið eða færa það yfir í eitthvað annað en það virðist ekki vera í boði. Eina sem hægt er að gera er að byrja upp á nýtt, með annað kerfi, sem myndi þá styðja myndainnsetningu.

Kannski maður geri það einhverntíman ef það verður einhver eftirspurn. Þetta er flott síða sem Sævar kom á og skemmtilegt hvernig hún geymir söguna. Eitthvað sem facebook gerir ekki.

Það væri gaman að sjá hvernig útkoman er og hvað þú hefur gert, en eins og er þarftu að koma myndunum fyrir í hýsingu einhverstaðar og setja inn myndahlekki á þær.

[ Edited Wed Aug 20 2025, 08:05p.m. ]
Back to top
 

Jump:     Back to top

Syndicate this thread: rss 0.92 Syndicate this thread: rss 2.0 Syndicate this thread: RDF
Powered by e107 Forum System
�essi s��a er keyr� � E107 vefumsj�narkerfinu. | Designed by Angelus Design