Jeb... jæja ég er 17ára (92 módel) búinn að vera með bíladellu frá því ári fyrir Lurk... Er úr 101 RVK. Er í Borgó að læra Beyglubankarann, vinn hjá Blikksmiðnum HF og baka Pizzur þar á milli
Fékk Súkkudelluna í gegnum bróðir minn sem er búinn að eiga nokkur stykki, sá sem stendur samt mest uppúr er stuttur '85 háþekja á 38" með A-stífu gorma-system að aftan og eithvað af dóti.. var velt í prufutúrnum við bræðurnir sluppum. En þessi bíll var semsagt sá sem kveikti Súkkuáhugan í mér. Endilega ef eithver kannast eithvað við þessa súkku má hann líka láta mig vita.... Annars sé ég ekki sólina fyrir Volvo...öllum nema þeim orginal....
Þú vilt sem sagt meina að þinn Volvo hafi verið ógeðslegur fyrir 2-3 árum Jói minn. Svosem skiljanlegt þetta er bara Volvo EKKI Suzuki FOX.
Kannski ekki alveg ógeðslegur eeeen ekki mjög töff Mér fannst hann nátturulega töff þegar ég var 14 ára, nýbúinn að kaupa hann...en þegar maður hugsar til baka eða horfir á Orginal 240 Volvo-a keyra eru þeir eekkert svo svalir haha.. alltof háir og kjánalegir eithvað :s
væri hægt að fá eitthvern volvo dálk hérna fyrir ykkur
Þess þarf nú ekki þar sem Volvospjallið er til eins og Hafsteinn bendir á. En Volvo og Súkka eru tengd órjúfanlegum böndum því að sennilega hafa fáar ef nokkrar vélar ratað eins oft ofan í hesthúsið á Súkku eins og Volvovélaranar