Jæja. maður keypti sér víst GT pressu og áhuginn á sukkunni dó og því er hún til sölu.
Ekin 85 þús mílur 1.6 vél sjsk árg 93 held ég eða 92 slikkar allann hringinn 15" Er með endurskoðun en selst með fulla skoðun. næ vonandi að koma honum í skoðun fyrir helgi Neon Ljósakit undir honum með þráðlausri fjarstýringu gott lakk Kittaður og lækkaður samlæsingar
Ótrúlega ljúft að keyrann. ekkert skrölt og einginn titringur í neinu.
Ásett: 290 þús Skoða skipti S:895-6667 Gísli
Búinn að kaupa nýja rist í framstuðarann þar sem skemmdin er
þetta er nett flipp þessi bíll en að kalla þetta læðuna er ekki alveg við hæfi hér á síðuni, þar sem upprunalega læðan er ekki til heldur er hún í pörtum, óli og aggi rifu hana. er það bara mér sem fynnst það? en samt ég væri nú alveg til í þennan bíl uppá grínið að gera. tími reyndar ekki að láta pening fyrir en samt væri alveg til
Í sjálfu sér er ekkert að fæla mig frá honum Það er gott að keira hann og hann er þéttur og góður í akstri En ég á eftir að setja beysli á hann og ég er að spá hvort ssk þolir að draga 1,5 tonn Og er ekki alltaf allt til sölu fyrir rétt verð
Ég fór einhverntíma með kerrufylli af lödudrasli á haugana, ætli það hafi ekki rétt sleikt tonnið, þá á ég við öxulþunga kerrunnar, en öxullinn er sirka fyrir miðju hennar.
Bíllinn var algjörlega ómögulegur hjá mér, ætlaði varla að beygja en var samt svo léttur að aftan að það mátti ekki gefa rösklega í.(Ekki að það hafi verið hægt)
Satt, en hann dugar í það Lagalega má hann draga 1,5 tonn og það er nóg fyrir mig Hann þarf ekki að duga nema í nokkra mánuði og það er ekki eins og hann verði dragandi allan tímann