Hvaða ætla Gunni og Gísli að gera í því?? ætliði að skipta um vél eða reyna laga þær?? Tilvalið tækifæri fyrir Gísla að setja Vitöru throttlebody-vél....
Ég er ekki búinn að ákveða, þarf að skoða hvað kostar að græja nýja heddpakkningu, annars stendur til boða ein 1300 vél eða að reyna að finna 1600. Allt saman raunhæfir kostir, en þó líklega auðveldast og fljótlegast að skipta bara um pakkninguna.
Sáuð þið fréttirnar í kvöld frá Galtarvita þar stóð ein Súkka og svo kom fram í fréttinni hvað það var erfitt að komast þangað. Það er alltaf Suzuki færi.
Ég veit það ekki....ef mótorinn minn er enn í lagi kostar heddpakkning hjá umboðinu 8000 kr.... Vélin mín er náttúrulega þetta mikið tjúnuð, ætti að vera þess virði að lappa uppá hana.....þó svo að mig langi oft á tíðum í aðeins meiri kraft á þjóðveginum......veit ekki hvað er hægt að gera.....taka kannski kaskó tryggða benzann hans pabba og negla á svona eina 1600 vitöru.....þá fæ ég nýja vél og pabbi nýjan bíl.....
Verra ef þeir hafa ofhitnað mikið hjá ykkur þá gæti heddið verið sprungið, þá þarf að láta plana það(mæli með því að það sé ALLTAF gert þegar heddpakkning fer) og ef það dugar ekki þá er heddið ónýtt.
Ég hef nú aldrei borgað meira en 25 þúsund fyrir G16B vél, og ég er nú búinn að kaupa nokkrar svoleiðis í gegnum tíðina. Ef að heddið springur þá er plönun ekki að fara að hjálpa neitt, en oft má nú minnka lekann verulega með blokkarþétti. Þessi hedd reyndar springa yfirleitt á sama stað og eru oft vel viðgerðarhæf fyrir menn sem geta soðið ál.
Ég vonast til að geta komið með, veit ekki hvort ég myndi gista, því ég er með bæði krílin með mér, en amk keyra með annan daginn. Annars er ég orðinn internetlaus heima fyrir og því er virknin á sukka.is ekki sem skyldi. Ég biðst forláts á þessu.