Elías heiti ég og er súkkuvitleysingur með fleiru úr mosfellssveitinni og hef átt þennan litla díseltrukk í um eitt og hálft ár. Trukkurinn er af gerðinni Suzuki Vitara 2.0 TurboDiesel og er breyttur fyrir 33". Ég keypti hann tjónaðann á 31" og eyddi þarsíðasta sumri í að endurbyggja framhliðina og breyta honum og bæta og hef aldrei hætt því síðan. Ég nefndi hann Léttfeta sem mér fannst svakalega frumlegt og skemmtilegt þar til ég fór inn á f4x4.is og komst að því að annarhver Willys á landinu heitir Léttfeti . En hann heitir það engu síður...
Listinn yfir það sem ég hef gert við hann er alltof langur til að telja upp en það allra helsta sem hjálpar honum að komast áfram í ferðum er:
2" hækkun á fjöðrun (tæplega) 2" hækkun á boddí 33" Goodyear Wrangler dekk Loftdæla úr gömlum Cadillac rúntara Spennulæsing í afturdrifi (Það má deila um hvort hún hjálpi við að komast áfram í ferðum, en hún hjálpar manni allavega að komast lengra inn í skaflinn sem maður festir sig í en hjálpar þér svo ekki út aftur ) Lækkuð hlutföll (5.12 í stað 4.30) Sérsmíðaður Snorkel (ekki heimasmíðaður )
Og svo er ýmislegt annað sem hjálpar honum ekkert áfram en þykir þó nytsamlegt til annars en bara að þyngja bara bílinn:
CB talstöð Slökkvitæki Skóflufesting á afturhlera Spotti og að sjálfsögðu íslenzki fáninn!
og svo er í smíðum kastaragrind á þakið og fleira óþarfa drasl
Svona var hann rétt eftir að ég keypti hann, búið að gera við mestu beyglurnar. Þegar ég fékk hann var þetta horn komið inn í bílinn og ljósið vantaði.
Mæli með þessu fyrir Vitöru eigendur. Þótt þetta sé ekki stórt eða dýrt þá drulluvirkar þetta Nú er vélin ekki að anda að sér öllu rykinu og viðbjóðnum sem leikur um innra brettið þar sem loftinntakið var. Þetta tók bara eina kvöldstund...
Sæll og ævinlega velkominn. Ég ætlaði nú alltaf að hnippa í þig uppí Borgó og benda þér á síðuna og klúbbinn, en ég hélt af einhverjum sökum að þú hefðir selt bílinn.
Ánægjulegt að fá fleiri grútarbrennara í klúbbinn og enn ánægjulegra að fá Mosfelling.
Heyrðu, fyrst við erum að dást að díselsúkkum, ég þarf að fá að njósna ofaní húddið á einni slíkri, er að reyna að koma einni í gang sem ég reif ekki í sundur sjálfur og er í smá vandræðum með. Er það möguleiki?
Takk fyrir það. Ég tók einmitt eftir klúbbnum á límmiða á bílunum ykkar í skólanum. Og mér dytti ekki í hug að selja bílinn frekar en að selja lifrina Og Gísli það er minnsta mál hleypa þér í húddið á sunnudaginn ef þú ert til í skrepp hingað í sveitina ef þú verður ekki búinn að redda þessu þá. Ég verð fastur í vinnu fram á laugardag þannig láttu bara vita um helgina
Maður verður eiginlega óður í að breyta Vitörunni við að skoða myndir af þessum bíl, hann er svo svalur svona á 33" með skópi og allt. (Pabbi, þú sást þetta ekki.)