sælir félagar Aron Andri heiti ég og er úr kópavoginum á 21 ári, og er mikill súkku maður vill ég meina, ég er búin að eiga 4 gegnum æfina byrjaði á einni 33" keipti svo eina sem var tætt i sundur er svo buin að eiga spánverja i næstum 2 ár þangað til ég loksins eignaðist 33" aftur nú fyrir stuttu, svo var ég einning að spá i þvi hvort maður fengi formlega ingöngu í klúbbin og fái að fljóta með í ferðir í vetur. hér er mynd af súkkonum sem ég á nuna svo fyrir neðan hana kemur mynd frá þvi i dag skelti mér kalda dalin og uppað langjökli
svo hér fyrir neðan er eithvað af myndum af súkkum semað ég ákvað að henda með
og svona fyrir þá sem ekki hafa séð undirvagnin á vitöru þá er hann svona
ohhh ert þetta þú, legend í borgó menn tala enn um þig þarna í bíladeildinni, en velkominn og flottur, sá bílinn fyrir tilviljun fyrir utan hjá honum Ragga á fimmtudag eða föstudag, flottur
það var nu félagi minn semað átti bílin og er legendið á bakvið þessa veltu, en já bíllin var hja útí íshellu i vikunni .. hann var í sma makeoveri hjá tolla
Gatið fyrir öxulinn var orðið egglaga, hann hefur fengið að finna fyrir því heillengi eftir að legan var búin. Pakkdós ein og sér hélt ekki einu sinni olíunni inni, þurfti að líma meðfram henni til að loka alveg.
En samt spurning um að þú segir okkur eitthvað frá bílnum þínum.
það er ekkert mál þettað er bara klassísk vitara arg 96 með 1600 vél hækkuð fyrir 33" held að það séu 6 " a bodyi og svo hef ég bara ekki græna glóru um hvaða hlutföll eru í honum og hann er á þokkalega níjum dekkjum semað ég alta setja í micro skurð fyrir veturinn einusinni leit hann svona út þettað var þegar við fórum að kaupa kanta á bílin(félagi minn átti hann þá ) fyrir ca. 4 árum
svo á ég engar myndir af þvi þegarþ að var verið að hækka hann en svo var skipt um lit á honum
svo leit hann svona út á tímapunkti
svona leit svo bíllin út þegar ég fékk hann í mínar hendur