Jens Olsen heiti ég. Og á ég heima á Höfn í Hornafirði. Fyrir 2 vikum verslaði ég minn fyrsta bíl og jafnframt minn fyrsta jeppa. Suzuki Grand Vitara V6 2.5L árg. 1999. 35” breyttur, ekinn 162.000 km, beinskiptur.
Nánar um bílinn. 5:13 drifhlutföll. ARB loftlæsingar framan og aftan Loftkerfi með kút og úrtaki í grilli. IPF tveggja geisla kastarar á krómkastaragrind Þokuljós. Vinnuljós á toppi Álkassi að aftan Leðursæti og armpúði úr 2005 árgerð af Grand Vitara. CB talstöð Loftnet fyrir VHF. Er ég bara ánægður með hann en er ekkert búin að fara neitt á honum. En stefnan er tekin á ferð um næstkomandi helgi.