Jæja þá er ekki aftur snúið byrjaður að rifa og tæta. Hásingin að framan komin undan og verið að skera í burt óþarfa drasl og mæla og pæla. Ég ætla að reyna að henda hér inn myndum svona annað slagið. Þetta gengur nú örugglega hægt hjá mér því ég hef ekki mjög mikinn tíma aflögu nema kannski um helgar.
Allt klárt til að byrja að rífa.
Þetta ætti nú að vera fljótlegt að fjarlægja.
"Þröngt mega sáttir sitja" þarna kúra tvær Súkkur hlið við hlið í skúrnum hjá Sigga Hall
Rétt er það LC 70 hásingar með öllum stífum að framan en held 5 linkinu að aftan og loftpúðunum, skipti bara um hásingu þar. Meiningin er svo að setja raflása úr Toyotu sem búið er að breyta fyrir loft í báðar hásingar. Að endingu svo Rocklobster í millikassann og kannski eitthvað meira. Já ég gleymdi nærri einu hann breikkar um rúmlega 17 cm við þetta og ég get sett gormana að framan utanvið grind og fært loftpúðana utar að aftan sem þýðir að hann ætti að verða mjög stöðugur og skemmtilegur í keyrslu.
Jæja framkvæmdir ganga hægt en örugglega. Búið að stilla upp framhásingu og við það komu strax í ljós nokkur vandamál sem þarf að leysa. Eitt aðalvandamálið er útaf því að þetta er high pinion eða svokölluð reverse hásing. Ég lendi í því að drifskaftið lendir beint í gírkassafestingunni af því að hallinn á skaftinu verður svo lítill, pústið þarf líka að hliðra til vegna þessa og svo er spurning með togstöngina hvort hún og olíupannan eiga eftir að rekast á en það má nú sennilega koma í veg fyrir með rétt stilltum samsláttarpúðum. EN MIKIÐ DJ..... á hann eftir að verða breiður, ég þarf að breikka brettakantana um 8-9 cm, það liggur við að dekkin séu komin útfyrir boddýið!!! Og svo er eitt svakalegt vandamál sem er komið upp, Súkku er aftur farið að dreyma blauta drauma um V8 3,5 Rover álvél (allt því að kenna að vera í skúrnum hjá Sigga og hans V8 Súkku) En aðalmálið er að Roverinn er léttari en Volvo vélin sem nemur 20 kg og með fleiri hesta. Set eitthvað af myndum inn seinna í kvöld (myndavélakvikindið er eitthvað að stríða mér)
Búið að stilla hásingunni upp að mestu.
Verið að sjá hvernig þetta kemur til með að líta út, henti felgunni lika á til að sjá hvernig hún passaði.
Þarna þarf svo að smíða "turna" fyrir stífurnar að aftan.
Þarna sést að það þarf eitthvað að rýma til fyrir drifskaftinu.
Eins og sést hér er innribrún á felgu bara rétt innan við ytri brún á brettinu.
Það sést betur hér hversu mikið hann breikkar, spurning hvort hann sleppur út úr skúrnum að þessu loknu.
já flott ég kannast við flest vandamálin og þekki líka flesta kostina. Ég er með að mig minnir 30cm breiða kanta og gormana fyrir utan grind og fl.og fl.
já flott ég kannast við flest vandamálin og þekki líka flesta kostina. Ég er með að mig minnir 30cm breiða kanta og gormana fyrir utan grind og fl.og fl.
Hilmar, vandamál? Hvað er það aftur?
Björn Ingi, er þetta mynd af könguló á fánanum þarna uppá vegg?
Jú sjáðu til það er mánuður bleiku slaufunnar(átak gegn brjóstakrabbameini) og Siggi gerði þetta til að sýna stuðning í verki, hehe smá grín en svona í alvöru þá var búið að breyta skúrnum í verslun af einum af fyrri eigendum og ætli liturinn komi ekki þaðan, nú og svo er bleikur ekki verri en hver annar litur.
Passar bara nokkuð vel og er nánast beint niður úr grindinni.
Svona kemur þetta til með að verða og svo kemur önnur svona plata að innanverðu líka, verður vonandi nógu sterkt. Hef svo sem ekki áhyggjur af því, ég smíða þetta úr 4mm og grindin sjálf er örugglega ekki svo þykk svo að ef eitthvað gefur sig þá verður það líklega bara grindin sjálf. Næsta mál er að heilsjóða þetta allt saman og í það fæ ég suðumeistarann bróður minn, hann vinnur jú við þetta allann daginn svo að þetta ætti að verða nokkuð gott. Ég gæti svo sem soðið þetta sjálfur en hann er bara svo langtum vanari og betri suðumaður að það er um að gera að fá hann í þetta. Bara það besta fyrir Súkku
Já það leysist við það að skipta út revers drifkögglinum fyrir venjulegan með læsingu en býr til nýtt vandamál, sem er að ég þarf að breyta stýrisganginum meira, þarf að færa millibilstöngina framfyrir hásingu sem er kannski minna mál að eiga við.
Þessi skúr er gúrmei. fáninn var algjör snilld. ég spurði hvar er Siggi og Björn sagði hann er á skitteríi, svo labba ég aðeins um og jáhá hakakross.. hugsaði bara shit hvað er í gangi. haha. veit allavega að kærastan mín fílaði bleika litinn, kannski spurning að taka þetta svona heima svo að hún vilji aðstoða mig inní skúr.
"EXTRA EXTRA READ ALL ABOUT IT" Stórfréttir, fór loksins í skúrinn að gera eitthvað síðan einhvern tíman fyrir jól. Fæ líklega stýrisarminn úr smíðum um helgina og þá er hægt að ganga loksins frá framhásingunni. Hendi kannski inn nokkrum myndum seinna.
Hann á helst að vera til fyrir þorrablótsferð F4x4 Húnvetningadeildar sem er í febrúar. Ég veit ekki fyrr en á mánudaginn hvenær þorrablótið verður nákvæmlega, það verður ákveðið á fundi þá hvert verður farið og hvenær. Þetta fer nú að lýta illa út með veturinn bráðum kominn miður janúar og nánast enginn snjór á fjöllum. Við förum ekki mikið í Galtarvita ef svo heldur áfram sem horfir, bara hlýindi framundan.
Verst er hvað maður er alltaf latur í skúrnum meðan enginn er snjórinn, en um leið og hann kemur æsist maður svo upp að allur tíminn fer í skúrinn og maður kemst ekki á fjöll
Jú kallinn minn það er sko auðvelt, þegar maður er aðaltölvugúrú sveitarfélagsins og á sæti í 4 stjórnum félagasamtaka, sit í einni nefnd á vegum sveitarfélagsins og er síðan félagi í hinum og þessum samtökum, þá er sko auðvelt að komast í tímaþröng. Ég ætla nú að fara að minnka við mig eitthvað af þessu. Ég hef komist upp í það að sitja á fundum hvert einasta kvöld í heila viku. Nú svo eru öll hobbýinn eftir, tölvur,bílar,tónlist og á tímabili stundaði maður ræktina alveg á fullu og ætla ég mér að byrja á því aftur. Einfalt ekki satt. Það er hinsvegar ekkert stress úti á landi. Hér í fámenninu hafa menn einfaldlega fleiri hlutverk á hendi.
vollinn stendur fyrir sínu. allavega hef ég mjög góða reynbslu af volvo. enda búinn að eiga nokkra 240´bíla og einn 740. og mig langar alveg svakalega í 240 TIC
Sjálfsagt held ég í Volvoinn eitthvað lengur en ef ég safna fyrir vél verður það V8 Rover álmótor sem er lítið þyngri en Volvoinn, og aftan á þeim mótor verður sjálfskifting og þá verður gaman með 160 hesta í húddinu.
Ég veit líka um einna svona 8 gata mótor með 5gíra kassa og milli kassa. sem þú getur eflaust fengið á lítið. það er reyndar innspýtingar mótor. en Eflaust ekki mikið vandamál að koma fyrir einum edelbrock tor á hann ég skal bara heyra í félaga mínum og sjá hvort að hann eigi örugglega ekki mótorin til enþá.
Er þetta Rover vél? innspýtingarvél úr eldri Range Rover er ekki stór mál að setja í hvaða bíl sem er því að það er ekkert tölvustýrt nema innspítingin og það er bara smá box undir bílstjórasætinu.
Kannski maður ætti bara að tjúna Volvorelluna svolítið, það er mjög lítið mál að ná töluverðu afli út úr þessum vélum. http://www.youtube.com/watch?v=apib8sv5kao Það sést vel hér en þetta er að vísu 16v túrbo mótor en basicly sami mótor bara annað hedd. Það er klikkuð orka í þessu dóti.
Búið að smíða demparafestingar og verið að máta demparana. Þarna vantar bara stýrisarm, hliðarstífuna og samsláttarpúða.
Já Sæll er tekki að grínast. Eftir betri mælingar kemur í ljós að breikka þarf kantana meira en gert var ráð fyrir upphaflega.
Þær voru heldur óásjálegar felgurnar áður en maður byrjaði að taka þær í gegn. Maður þarf að fara að koma dekkjunum á svo maður geti mátað þau undir.
Felgurnar heldur skárri en þær voru. Afturhásingin er á leið í hús svo hægt sé að fara að setja læsinguna í og skera í burt gamla stífudótið af henni og smíða festingar á hana fyrir aftur stífurnar og loftpúðana.