Ákvað loksins að gera kynningu um bílinn sem ég kaupti mér milli jóla og nýárs
Súkku áhugi minn byrjaði fyrir nokkrum árum eftir að hafa prufað 33'' breyta vitöru sem vakti upp mikla löngun til að eignast Súkku. Nokkur ár liðu án Súkku en loks varð draumurinn að veruleika:) Eftir mikla leit varð fyrir valinu þessi frábæra Suzuki Sidekick jx japplingur á 35'' túttum. 1600cc mótor með flækjum sem virkar ekki alveg nógu vel en nóg í bili:p er búin að gera smá fyrir hana frá því ég fékk hana, sauð í pústið, færði framstuðaran upp um 6cm, smíðaði kassa aftaná hana og það nýjasta eru stigbrettinn fínu henti svo Xenon kerfi og VHF loftnetinu á hana í gærkvöld
Veitti þessum smá athygli bæði í ferðinni um daginn og svo í hafnarfirði í dag, orðinn vígalegur, veistu hvað hann er farinn að vigta með öllu þessu utan á sér
Djöfull fynst mér hann vigtka mikið hjá þér. En þú ert en á 35" er það ekki. bíllinn minn vigtar 1320kg með hálfum tanki. Þannig að hann er um 1430kg með mér ug fullum tanki. En svo á ég eftir að setja 33" varadekk aftan á hann og drullutjakk og svona.
já leist bara svona helvíti vel á þessa hugmynd hjá þér en keypti alveg helling af varahlutum í dag á annað hundrað þúsund svo Súkkan fær dekur um helgina
já tók súkkunna vel í geng í sumar og gerði hana góða fyrir veturinn, skipti um tímareim, heddpakkningu, ólíusíu, gorma, dempara, diska, klossa, gerði við pústið og margt fleira. Svo núna fyrir stuttu keypti ég á hana flottari kanta og í gær verslaði ég í hana nýja (notaða) stóla úr Sunny Gti planið er svo að mála hana í október svo hún verði tilbúinn fyrir fyrstu ferðirnar í vetur