Sælir Súkkumenn. Ég ákvað að skrá mig svona fyrst ég er alltaf að kíkja hérna annað slagið.
Súkkudellan byrjaði hjá mér ´96, en þá keypti pabbi SJ410 ´84 með B21 og Willys hásingar á 33". Sá bíll var mikið notaður fyrir vestan (Stykkishólmi) og gekk undir nafninu Tímon. Svo var SJ413 löng þarna líka á 36" sem að var kallaður Púmba. Verð að redda myndum af þessum græjum.
Sjálfur hef ég bara átt eina Súkku og var það Samurai sem að einn spjallverjinn hérna á í dag. Hann er/var á 35" með hlutföllum úr SJ410 og virkaði fínt. Hér er smá videobrot af leikaraskap á henni. http://www.youtube.com/watch?v=0NgmjPnUsek
Einn daginn ætla ég að eignast Súkku aftur. Helst langar mig að smíða Jimny á 36". Ég á nefnilega Hilux hásingar, millikassa og gírkassa og einn 4.0 V6 Ford mótor Hmm......
Einn daginn ætla ég að eignast Súkku aftur. Helst langar mig að smíða Jimny á 36". Ég á nefnilega Hilux hásingar, millikassa og gírkassa og einn 4.0 V6 Ford mótor Hmm......
Hljómar vel og alveg mátulega brjálæðislega, velkominn á spjalið.
Sjálfur hef ég bara átt eina Súkku og var það Samurai sem að einn spjallverjinn hérna á í dag. Hann er/var á 35" með hlutföllum úr SJ410 og virkaði fínt.
Passa hlutföllinn úr sj410 beint yfir í samurai hásinngarnar?
Velkominn Stebbi minn. Ertu að fara fá þér aðra súkku eða??? Ég þarf að fara að klára gera sá gamla góða upp til að koma honum á götuna aftur. Kanski fæ maður þig bara til að hjálpa að breyta og stussast í honum í sumar
framoxlarnir i 413/samurai eru 22 rillu og afturoxlarnir 26 rillu. man ekki hvernig tetta er i 410 hvort tad er 26 ad aftan eda 22 en tad vaeri alveg haegt ad nota kamb og pinjon ur afturdrifi eda skipta ut hlidarhjolunum i drifinu