Ákvað að endurvekja góðan þráð frá Jeepson með því að gangsetja nýjan. Jæja, hvað er verið að bralla í skúrnum? Sjálfur var ég að klára að smíða toppgrind úr áli svo maður komi útilegudótinu betur fyrir.
Lýst vel á þig Hörður. Svona þráður er nauðsinlegur Það sem er að gerast hjá mér er að herða útí bremsum að aftan (þegar ég kemst að því hvernig á að gera það) Svo skiptum við pabbi um innri öxulhosu í gær. Svo er það svona smá plokk bara. Ég er að skoða það að selja súkkið núna. En ef ég geri það ekki þá stendur til að mála camo munstur á hann á næstuni
sjalfur var ég að klára að setja bretta kanta á minn kagga á eftir að setja drullu sokkana á það verður bara helgar dútl við tækifæri svo langar mér að smíða grind að framan á bílin
Ég var að klára smá minniháttar ryðbætingar í hurðarfölsum. Spólaði upp bletti með sandpappírsskífu, málað yfir bert járn með RUST STOP, látið þorna, málað yfir með blandaðan lit fyrir bílinn minn og næstu helgi vonandi næ ég að pússa aðeins upp og glæra yfir litinn. Svo er spurning um að ditta smá að grjótbarningu á nefið á honum.
Svo er pæling að rífa dráttarbeislið undan honum, láta breyta því þannig að ég geti tekið krókinn af og svo láta pollýhúða það svart eða samlitað bílnum.
Ég er var að skifta um aftur hjólalegu og pakkdós í sammanum mínum og er að fara í riðbætingar, hann er nú sáralítið riðgaður sem betur fer, svo þarf eg að áhveða lit á hann
svona víst fólk er að tala um skúrna sína hérna .. er einhver með aðstöðu til að hjálpa mér að skipta pakkningu eða pakkdós (aldrei viss hvort er hvað) aftan í gírkassa leiðindar smit / leki þaðan
Það er altaf pláss ískúrnum mínum nema þegar ég er með bíla í þrifum. En það er nú kanski full langt fyrir þig að fara en jæja hvað um það. Mér tókst að laga hazard ljósin áðan. Þannig að það er bara endurskoðun 14:15 í dag og vonandi fær maður bláan miða. Annars er súkkan svo umhverfisvæn með svona grænum miða
Það gerist margt í skúrnum þegar maður má vera þar. Litla vélakrílið komið úr salnum á líffæragjafanum en ég á eftir að opna hana og sjá hvað hefur gengið á.
ég er að yfirfara hedd og skipta um ventla í hvítu blæju súkkunni og mun selja hana þegar það er búið. Þá munu hefjast breyttingar á hinni súkkunni minni en þar á að reyna setja cherokee gorm að aftan, rancho 5000 rs jafnvel færa hásingu einhvað aftar fyrir 35 tommuna seinna meir, athuga hvaða gormar passa að farman, síkka framdrifið, flækjur á vél og síðan seinnameir vonandi túrbóa þetta.

Djöfull ertu öflugur!
Tók heddið af í gærkvöldi og þá kom í ljós yfirborðsrákir í sílindrum en ekki rispur. Síðan kemur það í ljós í kvöld hvort sveifaráslegur eru í lagi eða ekki en þá ákvarðast það væntanlega endanlega hvort þessi vél eigi sér framhaldslíf eða ekki.
ég er að yfirfara hedd og skipta um ventla í hvítu blæju súkkunni og mun selja hana þegar það er búið. Þá munu hefjast breyttingar á hinni súkkunni minni en þar á að reyna setja cherokee gorm að aftan, rancho 5000 rs jafnvel færa hásingu einhvað aftar fyrir 35 tommuna seinna meir, athuga hvaða gormar passa að farman, síkka framdrifið, flækjur á vél og síðan seinnameir vonandi túrbóa þetta.
ég er að yfirfara hedd og skipta um ventla í hvítu blæju súkkunni og mun selja hana þegar það er búið. Þá munu hefjast breyttingar á hinni súkkunni minni en þar á að reyna setja cherokee gorm að aftan, rancho 5000 rs jafnvel færa hásingu einhvað aftar fyrir 35 tommuna seinna meir, athuga hvaða gormar passa að farman, síkka framdrifið, flækjur á vél og síðan seinnameir vonandi túrbóa þetta.
Hey. Vinsamlegast láta mig vita þegar þú ætlar að selja hana
Jæja nú er vélin komin í frumeindir og er hún nú dæmd ónýt. Það er hægt að gera hana upp en þá þarf nýjar legur, stimpla, stimpilhringi, pakningasett, plana og þrýstiprófa hedd og eflaust o.fl o.fl Vitiði hvað verðið á þessum hlutum er, bara svona í gamni? En það er mjög margt nýtanlegt úr henni og líklega best að láta hana þjóna öðrum lífvana vélum.
eru ekki einhuerjir a vestfjordum sem eru med skur og allskonar verkfæri finnst jimny-in vera kraftlaus hvort einhver vill hjalpa mer med thví ad kikja a kertin hja mer og jafnvel tjoppumæla madur vonar alla vega
Ég er með skúr. Jimný ætti nú að komast inn í hann og annar til. Ég er ekki með þjöppumælir. En það má nú athuga hvort að pabbi eigi mælirinn sinn enþá.
Ég er með alt í bið í augnablikinu. En ef ekkert gerist í þessum skiftum þá stendur til að skifta um bílstjóra hurð og halda áfram að dútla eitthvað í súkkinu.
afsakaðu jeepson hvað ég skrifa seint en ég var á ferð um landið og ætlaði að taka vestfirðina en svo var hætt við það á seinustu stundu gleymdi svo bara alltaf að kíkja á spjallið og segja frá því ..á minni ferð fann ég meðal annars 35" breyttan jimny á jökulsár lóni náði ekki tali af umráða manni / eiganda en tók nokkrar myndir þær koma bráðlega
3gja tommu hækkun og skera pínu úr þá er þetta bara komið. Passaðu þig bara að klára ekki dekkin strax. Hef smá áhyggjur af þessum öfluga mótor sem er undir húddinu. Dekk eru svo hellvíti dýr nú til dags.
Hjá mér gerist allt hægt og rólega. Er búinn að hreinsa mælaborðið ásamt öllu fyrir aftan hvalbak. Rafmagnsleiðslur komnar burt, stýrið einnig fram í maskínu, bremsudæla, púst. Svo styttist í að maður fari í að kútta niður boddíið, þannig að það er síðasti sjens fyrir ykkur að ná einhverju heillegu úr því.
Það er akkúrat ekkert að gerast hjá mér enda á ég engan skúr svo að það gefur augaleið að þar gerist ekki mikið. Súkka liggur bara í sólbaði alla daga og bíður eftir haustinu og að eigandinn nenni kannski að gera eitthvað þá.

Súkkan þarf nú að worka tanið Mér sýnist að henni veitir ní ekekrt af því að fá smá tan á kantana
Nei maður getur nú ekki endalaust hangið í annara manna skúrum. Siggi þurfti að fara að nota plássið og svo var ég nú búinn að vera mikið lengur en til stóð í upphafi. Fæ sennilegast að skjótast helgi og helgi inn hjá bróður mínum þegar hann verður búinn að skipta um vél í Súkkunni sem Siggi átti en það er kominn annar eigandi að henni núna og verið að setja ofan í hana Ford 351 Cleveland frekar en Windsor held ég.

Helv.. puð að búta niður bíl með slípirokk. Fór í byko aðan til að kaupa skurðarskífur og vá! stykkið kostar 402 kr!! Held ég þurfi að stela þessu úr vinnunni.